Díana Ósk Óskarsdóttir, prestur, teymisstjóri og faglegur handleiðari á Landspítalanum, hefur alla tíð haft mikla þörf og ástríðu fyrir að hjálpa fólki í bágri stöðu.
Hjartagæska Díönu og eiginleikar hennar hafa gert það að verkum að fólk hefur í gegnum tíðina leitað til hennar með alls kyns erfiðleika, lífsreynslu og tilfinningar – löngu áður en hugmyndin um prestsstarfið varð til. Þó hefur Díana aldrei upplifað sig sem ruslatunnu fyrir fólk. „Það er eitthvað sem dregur fólk að mér og mér er annt um allt fólk.“
Díönu virðist vera eðlislægt að sýna fólki hluttekningu, vera sérlega góður hlustandi, leiðbeinandi, trú og trygg og því er hún eins og sniðin fyrir starf Landspítalaprests. „Á leiðinni hef ég lært að setja mörk. Það er dýrmætt að geta miðlað þeirri reynslu að mörk eru undirstaða heilbrigðra samskipta.“