Höfundurinn Fjell skapaði rannsóknarlögreglumanninn Anton Brekke sem lesendur hans sjá varla sólina fyrir.
Höfundurinn Fjell skapaði rannsóknarlögreglumanninn Anton Brekke sem lesendur hans sjá varla sólina fyrir. — Ljósmynd/Anita Sjøstrøm
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Ég ólst upp í Gressvik hér í Fredrikstad og af skólagöngu minni fer ekki miklum sögum,“ segir viðmælandinn hispurslaust og brosir út í annað þar sem hann situr í hjólastól með sixpensara á höfði andspænis blaðamanni í nýrri og…

Viðtal

Atli Steinn Guðmundsson

atlisteinn@mbl.is

„Ég ólst upp í Gressvik hér í Fredrikstad og af skólagöngu minni fer ekki miklum sögum,“ segir viðmælandinn hispurslaust og brosir út í annað þar sem hann situr í hjólastól með sixpensara á höfði andspænis blaðamanni í nýrri og glæsilegri mathöll ekki langt frá farvegi árinnar Glommu, þar sem þungur og grár straumurinn þylur í hljóði dauðra manna nöfn.

Lítill er enda hörgullinn á harmleikjunum sem Glomma geymir. Þagmælskan er hennar aðal, vatnið talar ekki af sér, en ótal fyrirsagnir norskra fjölmiðla segja langa sögu og dapra. „Viðurkennir að hafa sökkt líki í Glommu“, „Líkfundur í Glommu í Fredrikstad“, „Kafarar fundu lík í Glommu...“, „Fann látna konu í Glommu“ og svo eins og skrattinn úr leggnum: „Er lax í Glommu góð hugmynd?“

Blaðamaður hefur enn ekki gert það upp við sig hvort hann legði sér nokkuð til munns úr þessum Hadesarheimi norskrar náttúru og um leið lengstu á Noregs sem rennur þar 620 kílómetra og geymir vafalítið mörg ófundin lík.

Blóðugur þríleikur með Horst

Í mathöllinni hefur nefnilega stærri fiskur bitið á agnið. Maðurinn með sixpensarann í hjólastólnum hefur margt líkið falið – en aðeins undir svörtu bleki á hvítum grunni. Glæpasagnahöfundurinn Jan-Erik Fjell fór beint í toppsæti metsölulista norsku útgáfurisanna Norli og Ark þegar Skriket, fyrsta bókin í blóðugum þríleik – og samstarfsverkefni þeirra þungavigtarmannsins Jørns Liers Horsts – kom í hillurnar í sumar.

Sá sixpensaraskrýddi varð aukinheldur yngstur rithöfunda í sögu Bokhandlerprisen, hinna virtu bókmenntaverðlauna norskra útgefenda, til að hljóta þau. „Mamma fór að hágráta,“ rifjar Fjell upp, sem sjálfur áttaði sig ekki á því fyrr en mánuðum síðar hvílík lyftistöng felst í því að hljóta æðstu viðurkenningu útgefenda. Hann var bara einhver tossi í skóla í iðnaðarbælinu „plankabænum“ sem ákvað að skrifa bók þegar honum tók að þykja dauf vistin á örorkubótum.

Þetta var árið 2010 og síðan hefur Jan-Erik Fjell skrifað margar bækur. Glæpasagnameistarinn frá Fredrikstad er að mati þess sem hér skrifar einn fárra landa sinna úr rithöfundastétt sem kunna að bregða fyrir sig leiftrandi – en um leið ísmeygilegri – gamansemi í norskum morðsögum. Hann segir áfram af skólagöngunni.

Voru tveir sem féllu í bekknum

„Það er nú dálítið fyndin saga,“ rifjar rithöfundurinn upp og dylur Fredrikstad-mállýskan ekki uppruna hans, eins konar undirdeild Østfold-framburðarins sem mátti þola harða gagnrýni þegar málvísindaprófessorinn Finn-Erik Vinje lýsti því yfir í blaðaviðtali árið 2013 að íbúar Fredrikstad mæltu á ljótustu framburðarmállýsku Noregs. Samtímis þessu voru kokhljóð Stavanger-búa, þar sem blaðamaður bjó raunar á þeim tíma, kosin kynþokkafyllsti framburður landsins. Margt er skrýtið í kýrhausnum.

„Eftir mörg ár í hvíld og ýmsar brautir í framhaldsskóla endaði ég í einhverju upplýsingatækninámi,“ segir Fjell. „Það var Aetaten sem kostaði þetta, sem seinna varð [norska vinnumálastofnunin] NAV og var nú aðallega bara til að fá atvinnulaust fólk til að hætta að mæla göturnar. Til að gera langa sögu stutta féllu tveir í bekknum á lokaprófinu, ég og einn til,“ segir Fjell og glottir við tönn.

„Næstum allur hópurinn var þarna bara til að fá bæturnar. Hinn gaurinn sem féll var á leið fyrir dóm og ætlaði sér að sýna dómaranum fram á breytt líferni sitt með því að hafa brotist til mennta fyrir aðalmeðferðina,“ segir höfundurinn frá á meðan hláturinn kumrar niðri í honum.

Ég skil. En nú stendur á bókarkápunum þínum að þú sért menntaður í IT-fræðum [upplýsingatækni, tölvur o.s.frv.], ég hélt að þú værir tölvunarfræðingur sem sneri sér að hinu ritaða orði.

„Já, það er nú einmitt það. Ég varð að tefla fram einhverju starfsheiti heimtaði fyrsti útgefandinn minn,“ svarar Fjell spurningu sem í raun var fullyrðing. „Svo fór ég í lýðháskóla í svipað nám sem var sami grautur nema að þar hét það upplýsingatækni-, skrifstofu- og stjórnsýslustörf. Hljómar rosalega vel en þar skítféll ég líka,“ segir hann sposkur.

„Við verðum að hafa eitthvað!“

Skömmu síðar urðu vatnaskil í lífi manns sem hafði ekki hugmynd um hvert það sama líf ætlaði honum. „Á þessum tíma var ég að skrifa Uppljóstrarann [n. Tysteren] og eitt kvöldið hringir sá sem var útgefandinn minn á þessum tíma og spyr mig hvaða menntun ég hafi. „Ja, þar er nú ekki feitan gölt að flá,“ svara ég. „Við verðum að hafa eitthvað!“ segir hann og ég segi honum að ég hafi síðast verið í námi í upplýsingatækni og skrifst..., „já, það er fínt, takk,“ segir hann og þar með var það úr sögunni,“ rifjar Fjell upp og minnir um margt á viðtal Morgunblaðsins við Michael Caine í mars sem hafði sekúndur til að velja sér sviðsnafn í símaklefa í London.

Áður en Fjell skrifaði Uppljóstrarann, bók sem skaut honum rakleiðis á sporbaug í skandinavískum glæpasagnaheimi og skartar höfuðsköpunarverki hans, KRIPOS-rannsóknarlögreglumanninum, spilafíklinum og háðfuglinum Anton Brekke, hafði hann sent frá sér fálmkennda tilraun undir titlinum Pus sem kom út árið á undan, 2009, og sannaði svo ekki varð um villst að fall er líka fararheill í Fredrikstad. Bókin hreyfðist einfaldlega ekki úr hillum verslana.

„Ég á tvo yngri bræður, ég er stóri bróðir og ég á að vera góð fyrirmynd. Það er ég ekki,“ segir hann og hlær af innlifun áður en stutt hlé verður á viðtalinu á meðan Fjell ræðir við Sjøstrøm ljósmyndara um föður rithöfundarins, leikarann Jan Edgar Fjell sem blaðamaður hefur aldrei heyrt um enda ekki Norðmaður eins og rithöfundurinn og ljósmyndarinn. Alltaf er maður utangarðs.

Einn góðan veðurdag, eftir að Uppljóstrarinn barst í hendur norskra lesenda, kom símtalið sem breytti lífi ungs og skítblanks rithöfundar í Fredrikstad og grætti móður hans svo um munaði. Um það símtal og fleira frásagnarvert í lífi glæpasagnahöfundarins Jan-Eriks Fjells frá Fredrikstad má lesa í heildarútgáfu viðtalsins á mbl.is.

Höf.: Atli Steinn Guðmundsson