Jólalegt Greni í víðfeðmum skógi. Eftirsótt og nú verður að fylgjast með.
Jólalegt Greni í víðfeðmum skógi. Eftirsótt og nú verður að fylgjast með. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tveir menn um þrítugt, Íslendingar, voru stöðvaðir nú á aðventunni þar sem þeir voru að fella jólatré í landi Skógræktarfélags Árnesinga á Snæfoksstöðum í Grímsnesi. Bændur í nágrenninu urðu varir óvenjulegra mannaferða í skóginum og létu tvo af fulltrúum í stjórn félagsins vita

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Tveir menn um þrítugt, Íslendingar, voru stöðvaðir nú á aðventunni þar sem þeir voru að fella jólatré í landi Skógræktarfélags Árnesinga á Snæfoksstöðum í Grímsnesi. Bændur í nágrenninu urðu varir óvenjulegra mannaferða í skóginum og létu tvo af fulltrúum í stjórn félagsins vita. Þeir fóru á vettvang og komu þá að hinum óvelkomnu skógarhöggsmönnum sem lögðu á flótta. Þeir óku af stað með alls 94 furutré á jeppakerru sem þeir losuðu sig fljótlega við og óku svo á brott.

„Þegar við komum sögðust mennirnir vera í skógarhöggi á veghelgunarsvæði, þetta væri nærri sveitavegi sem þarna liggur. Til þessa hefðu þeir leyfi frá Vegagerðinni, en þær skýringar standast ekki,“ segir Kjartan Þ. Ólafsson fv. alþingismaður, annar þeirra tveggja sem fóru á vettvang og stóðu gripdeildarmennina að verki.

„Kerruna sem mennirnir losuðu sig við fundum við í Snæfoksstaðalandi. Þar á voru höggvin tré sem við fórum með í sölu og þau hafa verið að tínast út síðustu daga. Nei, við höfum aldrei lent áður í neinu þessu líku og heppni að við skyldum ná mönnunum, en samanlagt virði þeirra trjáa sem þeir voru komnir með nálgast eina milljón króna,“ segir Kjartan.

Skógarþjófarnir, ef svo mætti kalla, komust ekki langt. Lögregla stöðvaði för þeirra í Grímsnesinu ekki langt frá Snæfoksstöðum. Skýrsla var tekin af þeim á vettvangi, en til stendur að kanna málið betur. Þar á eftir verður tekin ákvörðun um afgreiðslu málsins, skv. því sem lögreglan á Suðurlandi upplýsti Morgunblaðið um.

Myndi ekki vilja stolið tré í stofunni

En eru brögð að því að skógarþjófar fari um víðar, höggvi tré og reyni að koma í verð? „Nei, þetta er ekkert sem við höfum lent í hér í Heiðmörk. Hugsanlega hefur þó einstaka tré verið tekið í óleyfi og þá verða þau sem slíkt gera að eiga verknaðinn við samvisku sína. Mér myndi ekki líða vel með að hafa stolið jólatré inni á stofugólfi hjá mér á aðfangadagskvöld,“ segir Auður Elva Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélgs Reykjavíkur. Aðrir ræktunarmenn í skógum landsins sem Morgunblaðið hafði tal af svöruðu á svipaða lund og Auður.