Víkingur úr Reykjavík hefur fest kaup á knattspyrnumanninum Stíg Diljan Þórðarsyni frá ítalska félaginu Triestina. Stígur Diljan er aðeins 18 ára gamall en lék sinn fyrsta leik fyrir Víking sumarið 2022, þá einungis 16 ára gamall
Víkingur úr Reykjavík hefur fest kaup á knattspyrnumanninum Stíg Diljan Þórðarsyni frá ítalska félaginu Triestina. Stígur Diljan er aðeins 18 ára gamall en lék sinn fyrsta leik fyrir Víking sumarið 2022, þá einungis 16 ára gamall. Í september sama ár var hann seldur til Benfica og hélt þaðan til Triestina síðasta sumar. Hjá Triestina lék Stígur Diljan einn leik í ítölsku C-deildinni og einn leik í neðrideildabikar Ítalíu á yfirstandandi tímabili.