Skíðasvæðið í Bláfjöllum er lokað í dag, aðfangadag jóla, og á morgun, jóladag, en til stendur að hafa svæðið opið á milli jóla og nýárs; annan í jólum frá 11-16, 27. desember frá 11-21, 28. og 29. desember frá 10-17 og 30. desember frá 14-21. Lokað verður á gamlársdag en opið frá 12-16 á nýársdag.
Innan borgarmarkanna eru reknar þrjár skíðalyftur ætlaðar börnum og byrjendum en opið er inn á skíðasvæðin þegar aðstæður leyfa. Lokað verður bæði í dag og á morgun en annan í jólum stendur til að halda skíðasvæðunum í Ártúnsbrekku í Árbæ og við Dalhús í Grafarvogi opnum frá 12.15-17. Þá verða svæðin opin 27. desember frá 14.15-20, 28. og 29. desember frá 11-17 og 30. desember frá 14.15-20 ef aðstæður leyfa.
Óvissa er um opnun skíðasvæðanna á Norðurlandi sökum snjóleysis. Í Hlíðarfjalli á Akureyri, Böggvisstaðafjalli á Dalvík og Skarðsdal í Siglufirði verður athugað með opnun næst 27. desember en ekki fyrr en á nýju ári í Tindastóli við Sauðárkrók.
Skíðasvæðin á Austurlandi verða ekki opin um jólin en samræmd gjaldskrá hefur tekið gildi og aðgangspassar að öðru svæðinu gilda á þau bæði. Í Stafdal milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða verður svæðið opnað 3. janúar og í sama mánuði í Oddskarði, sem tilheyrir Fjarðabyggð.
Skíðasvæðið í Tungudal á Ísafirði verður opnað á nýju ári. olafur@mbl.is