Utanríkisráðherra Svíþjóðar segir að Kínverjar hafi hafnað ósk þarlendra saksóknara um að hefja sjálfstæða rannsókn á ferðum kínversks flutningaskips sem grunur leikur á að tengist því að skorið var á tvo neðansjávarfjarskiptakapla á sænsku hafsvæði í Eystrasalti í nóvember.
„Sænsk lögregla hefur verið um borð í skipinu og fengið að fylgjast með rannsókn Kínverja. En á sama tíma tek ég eftir því að Kínverjar hafa ekki orðið við beiðni okkar um að saksóknarar fái að koma um borð til að framkvæma eigin rannsókn,“ sagði Maria Malmer Stenergard utanríkisráðherra í yfirlýsingu til AFP-fréttastofunnar.
Kínversk stjórnvöld hétu því í gær að áfram yrði haft samráð við stjórnvöld á svæðinu í tengslum við rannsókn málsins. Skipið hefur legið við festar á alþjóðlegu hafsvæði í Kattegat en í gær létti það akkerum og lagði af stað norður á bóginn. Mao Ning, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, staðfesti að skipinu hefði verið siglt af stað „til að tryggja líkamlega og andlega heilsu áhafnarinnar“.
Gámaflutningaskipið Yi Peng 3 var á siglingu á svæðinu þar sem fjarskiptakaplarnir fóru í sundur. Annar kapallinn liggur frá Gotlandi til Litáens og hinn tengir Helsinki við þýsku hafnarborgina Rostock. Skipstjóri skipsins er rússneskur og evrópskir embættismenn hafa sagt að þá gruni að skemmdarverkin tengist innrás Rússa í Úkraínu. Rússnesk stjórnvöld hafa sagt þær ásakanir fáránlegar og hlægilegar.