Anna Rún Frímannsdóttir
The Christmas Quest er ný jólamynd frá Hallmark. Gerist sagan á Íslandi þar sem hinir íslensku jólasveinar Brians Pilkington leika stórt hlutverk en bandaríska leikkonan Lacey Chabert, sem einna þekktust er fyrir hlutverk sitt í Mean Girls, fer með annað aðalhlutverkið. Í myndinni leikur hún fornleifafræðing sem heldur til Íslands ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum, sem er norrænn tungumálasérfræðingur. Saman leita þau að þjóðsögulegum jólafjársjóði en eru þó ekki þau einu sem vilja komast yfir fjársjóðinn og því upphefst kapphlaup sem teygir anga sína víða um land. Það er eitthvað ákaflega sérstakt og pínulítið ankannalegt við það að horfa á ameríska jólamynd sem gerist á Íslandi en tökustaðir eru meðal annars Perlan, miðbærinn, Skálholt og Dimmuborgir. Þá hamast amerísku leikararnir við að bera fram íslensk orð eins og jólabókaflóð, skál og jólasveinar á milli þess sem þeir skera út laufabrauð, drekka malt og appelsín og borða kæsta skötu. En þrátt fyrir nettan kjánahroll á köflum er þjóðarstoltið samt svo mikið að manni þykir gríðarlega vænt um að landið fái þessa glæsilegu kynningu. Myndin skartar líka flottum hópi íslenskra leikara sem stóð sig heldur betur prýðilega. Gleðileg jól og njótið hátíðarinnar!