Frestun Bensínstöð N1 að Ægisíðu 102. Lokun hennar var frestað.
Frestun Bensínstöð N1 að Ægisíðu 102. Lokun hennar var frestað. — Morgunblaðið/Eggert
Meirihluti borgarráðs Reykjavíkur samþykkti þann 17. desember síðastliðinn að fresta áætlaðri lokun bensínstöðvar N1 við Ægisíðu 102 fram í maí á næsta ári, en til stóð samkvæmt rammasamkomulagi að bensínstöðinni yrði lokað þann 1

Sveinn Valfells

sveinnv@mbl.is

Meirihluti borgarráðs Reykjavíkur samþykkti þann 17. desember síðastliðinn að fresta áætlaðri lokun bensínstöðvar N1 við Ægisíðu 102 fram í maí á næsta ári, en til stóð samkvæmt rammasamkomulagi að bensínstöðinni yrði lokað þann 1. janúar næstkomandi.

Er þetta í annað sinn sem borgarráð frestar lokun stöðvarinnar, en í fyrra skiptið var það gert þar sem beðið var eftir niðurstöðu Borgarsögusafns um byggingarsögulegt og menningarlegt gildi stöðvarinnar. Ástæða frestunarinnar að þessu sinni er sú að deiliskipulag svæðisins hefur enn ekki verið samþykkt en fyrirhugað er að reisa íbúðir á reitnum umhverfis bensínstöðina.

Í rammasamkomulagi milli lóðarhafa og Reykjavíkurborgar segir enn fremur að þegar samþykkt deiliskipulag liggur fyrir muni eldsneytisafgreiðsla á stöðinni færast að Fiskislóð 15-21, en áfram verði heimilt um sinn að starfrækja þar aðra þjónusta þar til frekari þróun svæðisins hefst. Framtíð bensínstöðvarinnar við Ægisíðu hefur mikið verið til umræðu undanfarin ár, en til hefur staðið að friða hana ásamt þremur öðrum bensínstöðvum vegna m.a. menningarsögulegs eða byggingarlistarlegs gildis þeirra.