Gent mátti þola tap gegn Union Saint-Gilloise, 3:1, á heimavelli sínum í efstu deild belgíska fótboltans í gærkvöldi. Andri Lucas Guðjohnsen lék seinni hálfleikinn með Gent og hann skoraði mark liðsins á 60
Gent mátti þola tap gegn Union Saint-Gilloise, 3:1, á heimavelli sínum í efstu deild belgíska fótboltans í gærkvöldi. Andri Lucas Guðjohnsen lék seinni hálfleikinn með Gent og hann skoraði mark liðsins á 60. mínútu er hann minnkaði muninn í 3:1. Gent er í sjötta sæti deildarinnar með 30 stig eftir 20 leiki, 12 stigum á eftir toppliði Genk. Markið var það þriðja sem Andri skorar í deildinni á leiktíðinni og það fyrsta síðan í september.