Vísindamenn greindu frá því að þeir hefðu fylgst með því þegar órangútan læknaði sjálfan sig með því að rjóða laufum læknisjurtar á sár á andliti sínu í vernduðum skógi á Indónesíu. Rakus er karldýr og er talið að hann sé 35 ára gamall

Vísindamenn greindu frá því að þeir hefðu fylgst með því þegar órangútan læknaði sjálfan sig með því að rjóða laufum læknisjurtar á sár á andliti sínu í vernduðum skógi á Indónesíu. Rakus er karldýr og er talið að hann sé 35 ára gamall. Hann lifir í Gunung Leuser-þjóðgarðinum á Súmötru og hafa vísindamenn fylgst með lifnaðarháttum hans um árabil. Hann notaði tuggin lauf jurtarinnar akar kuning til að bera á sárið. Plantan er notuð víða um Suðaustur-Asíu við ýmsum kvillum, þar á meðal malaríu.