Paradís okkar höfuðborgarbúa, Heiðmörk, skartaði sínu fegursta einn kaldan vetrardag fyrir skömmu. Þar svignuðu grenitrén undan þunga snjósins sem fallið hafði um nóttina og klætt landslagið í hvítan búning veturs konungs
Paradís okkar höfuðborgarbúa, Heiðmörk, skartaði sínu fegursta einn kaldan vetrardag fyrir skömmu. Þar svignuðu grenitrén undan þunga snjósins sem fallið hafði um nóttina og klætt landslagið í hvítan búning veturs konungs. Nú erum við einmitt stödd á dimmasta og kaldasta tíma ársins en á dögum þar sem stillan ríkir er um að gera að fara í úlpu, setja á sig húfu og vettlinga, reima á sig góða skó og arka út í guðsgræna – nú hvíta – náttúruna. Og þeir sem kunna illa við myrkrið geta huggað sig við að sólin skín ögn lengur með degi hverjum.