Fasteignafélagið Þórkatla segir að æskilegt hefði verið að hugsa betur fyrir geymsluplássi á innbúi þeirra sem seldu eignir sínar í Grindavík til fasteignafélagsins. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá félaginu í gær. Yfirlýsingin var send út í kjölfar þess að Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Vísis, gagnrýndi Þórkötlu í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær.
Pétur sakaði stjórnendur fasteignafélagsins um að hafa tekið „rangar ákvarðanir“ og sett Grindvíkingum strangar kvaðir. Sagði hann að hundruð tonna úr búslóðum Grindvíkinga hefðu ratað á haugana, þar sem Grindvíkingar hefðu þurft að tæma hús sín.
Þórkatla ber fyrir sig að mikill þrýstingur hafi verið á félagið til að ganga sem fyrst frá kaupum á eignunum svo að Grindvíkingar gætu fest sér annað húsnæði.
Þórkatla, sem annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík, tilkynnti í nóvember að þeir sem hefðu selt félaginu hús sín í bænum gætu nú gert svokallaðan „hollvinasamning“ um afnot af húsinu og greitt þá aðeins fyrir hita og rafmagn. Fólki væri aftur á móti ekki heimilt að dvelja þar yfir nótt.
„Fasteignafélagið Þórkatla, sem keypti húseignir Grindvíkinga, hefur fullan skilning á því að fólk vilji gjarnan dvelja í fyrrum húsum sínum í bænum yfir nótt. Þetta er hins vegar nokkrum vandkvæðum bundið vegna hættuástandsins sem enn ríkir á svæðinu,“ segir í tilkynningu fasteignafélagsins en framkvæmdastjóri þess er Örn Viðar Skúlason. „Samkvæmt lögum bera fasteignareigendur, í þessu tilfelli Þórkatla, ríka ábyrgð á öryggi í eignum sínum. Það er á grundvelli þessarar ábyrgðar sem sú ákvörðun var tekin að fólk geti ekki að sinni dvalið yfir nótt í húsum félagsins í Grindavík.“
Sú ákvörðun verði endurskoðuð um leið og kvikusöfnun við Sundhnúkagíga hættir og líkur á eldgosi minnka.