Hvers eiga Albert Guðmundsson og Sigurður Jónsson, tveir af betri knattspyrnumönnum Íslandssögunnar, að gjalda? Þeir spiluðu báðir með Arsenal í efstu deild á Englandi og Sigurður auk þess með Sheffield Wednesday í fjögur ár

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Hvers eiga Albert Guðmundsson og Sigurður Jónsson, tveir af betri knattspyrnumönnum Íslandssögunnar, að gjalda?

Þeir spiluðu báðir með Arsenal í efstu deild á Englandi og Sigurður auk þess með Sheffield Wednesday í fjögur ár.

En samkvæmt allri „nútíma“ tölfræði væru þeir ekki taldir með. Þeir léku í deildinni áður en henni var breytt úr 1. deild í úrvalsdeild árið 1992.

Enskir fjölmiðlar og fótboltatölfræðingar eru nánast búnir að búa þannig um hnútana að þeir sem yngri eru halda að fótboltinn á Englandi hafi hafist fyrir 32 árum.

Þess vegna varð einhverjum á að segja að nítján Íslendingar en ekki 21 hefðu spilað í deildinni þegar Hákon Rafn markvörður Brentford bættist í hópinn á föstudaginn.

„Frá stofnun úrvalsdeildarinnar“ fylgdi með en það hefði átt að vera óþarfi. Deildin sem Albert lék í árið 1946 og Sigurður frá 1985 var efsta deild Englands. Það er óþarfi að setja þá í sviga.

Þetta er svipað og við tækjum okkur til og miðuðum allan íslenskan fótbolta við árið 1997. Allt sem gerðist fram að því væri ekki talið með í tölfræði dagsins í dag.

Og hvers vegna ættum við að gera það, spyrja eflaust flestir?

Jú, þá var efstu deildinni, 1. deild, gefið heitið „núllta deild“ (og nafn fyrirtækja í framhaldi af því) sem að sjálfsögðu var svo fljótt að breytast í „úrvalsdeild“.

Óhætt er að segja að það hafi verið óþörf breyting. Fyrsta deild ætti auðvitað alltaf að vera efsta deild. Er hægt að komast ofar?