Ragnar Björnsson fæddist 30. apríl 1970. Hann lést 20. nóvember 2024. Útför Ragnars fór fram 12. desember 2024.

Fallinn er frá Ragnar frændi okkar, langt fyrir aldur fram. Hann var og er eitt af börnunum hennar Jónu frænku móðursystur okkar. Hann ólst upp í Hjaltadal og kynntist þar öllum hefðbundnum sveitastörfum og ekki síst dráttarvélum en vélavinna af ýmsum toga átti síðan eftir að fylgja honum seinna á lífsleiðinni. Mikill samgangur var lengstum milli heimilanna enda mikill vinskapur og stór krakkahópur sem brallaði margt saman meðan fullorðna fólkið sat og spilaði bridge. Okkur eru minnisstæð hlátrasköllin sem glumdu úr eldhúsinu þar sem barist var í þremur gröndum eða einhverju áþekku. Ekki voru síðri hlátrasköllin í krakkahópnum en þar hló Ragnar hæst og grínaðist mest. Margoft var efnt til íþróttamóta þar sem keppt var í mörgum greinum og mætti Ragnar oftar en ekki á hvítbotna gúmmískóm og fór þá mikinn og oft með leikrænum tilþrifum. Draumur Ragnars var nefnilega á einhverjum tímapunkti að verða leikari og skemmtikraftur. Snemma varð hann líka snöggur til svars og það oft án þess að hugsa hvað gæti komið út úr því og gátu því mörg tilsvör verið bráðsmellin. Til að þróa leikhæfileikana var eitthvað æft og gott ef þeir bræður, Ragnar og Árni, hafa ekki kunnað Kaffibrúsakallana og fleira skemmtiefni utan að á unga aldri.

Við viljum votta öllum aðstandendum Ragnars okkar dýpstu samúð og minning um góðan dreng lifir.

Systkinin frá Marbæli,

Kolbrún, Hjalti, Haukur og Edda.