— Morgunblaðið/Eyþór Árnason
Venju samkvæmt á nýársdag afhenti forseti Íslands í gær hópi fólks riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu. Orðuhafar nú: Bala Murughan Kamallakharan fyrir störf í þágu nýsköpunarfyrirtækja, Brian Pilkington fyrir framlag til barnabókmennta, Edvarð…

Venju samkvæmt á nýársdag afhenti forseti Íslands í gær hópi fólks riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu. Orðuhafar nú: Bala Murughan Kamallakharan fyrir störf í þágu nýsköpunarfyrirtækja, Brian Pilkington fyrir framlag til barnabókmennta, Edvarð Júlíus Sólnes fyrir brautryðjandastörf á sviði jarðskjálftavarna og umhverfisverndar, Geirlaug Þorvaldsdóttir fyrir framlag til ferðaþjónustu, menningar og varðveislu myndlistar, Glódís Perla Viggósdóttir fyrir afreksárangur í knattspyrnu, Íris Inga Grönfeldt fyrir framlag til íþrótta og heilsueflingar barna, unglinga og fullorðinna í heimabyggð, Jón Þór Hannesson fyrir brautryðjandastarf í kvikmyndagerð og Jónas Karl Þorvaldsson, sviðsstjóri hjá Landhelgisgæslunni, fyrir framlag til friðargæslustarfa og öryggismála.

Einnig Kristín Jóhannsdóttir safnstjóri fyrir frumkvöðlastarf í þágu menningar- og ferðamála í Vestmannaeyjum, Magnea Jóhanna Matthíasdóttir fyrir framlag til þýðinga og ritstarfa, Sigurþóra Bergsdóttir fyrir bætt aðgengi að stuðningi og ráðgjöf fyrir ungt fólk, Sólveig Þorsteinsdóttir fyrir uppbyggingu bókasafna og landsaðgengi að rafrænum gagnaveitum, Þorsteinn Tómasson fyrir framlag til plöntukynbóta í þágu landbúnaðar, skógræktar og fleira og Þórir Hergeirsson handboltaþjálfari fyrir afrek í þjálfun og framlag til handbolta kvenna.