Met Útflutningsverðmæti eldisafurða 2024 verður meira en nokkru sinni fyrr.
Met Útflutningsverðmæti eldisafurða 2024 verður meira en nokkru sinni fyrr. — Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fluttar voru út eldisafurðir fyrir tæplega sex milljarða króna í nóvember og er það um það bil þriðjungi minna útflutningsverðmæti eldisafurða en í sama mánuði í fyrra. Þá var útflutningsverðmæti þessara afurða 47,9 milljarðar á fyrstu 11 mánuðum…

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Fluttar voru út eldisafurðir fyrir tæplega sex milljarða króna í nóvember og er það um það bil þriðjungi minna útflutningsverðmæti eldisafurða en í sama mánuði í fyrra. Þá var útflutningsverðmæti þessara afurða 47,9 milljarðar á fyrstu 11 mánuðum ársins sem er 12,1% aukning frá sama tímabili í fyrra, að því er fram kemur í tölum Hagstofu Íslands.

Í greiningu Radarsins er fullyrt að 2024 verði metár í útflutningsverðmæti eldisafurða og að útlit sé fyrir að eldisafurðir rjúfi í fyrsta sinn 50 milljarða múrinn. Fyrra met er frá árinu 2022 þegar útflutningsverðmæti nam tæpum 49 milljörðum króna.

„Vöxtur fiskeldis á Íslandi hefur verið markviss síðustu ár. Laxeldi er nú langstærsti liðurinn í útflutningi á eldisafurðum. Allar líkur eru á að hlutdeild þess aukist enn frekar á komandi árum.
Aukin framleiðsla í sjókvíaeldi og metnaðarfull áform um stórfellda uppbyggingu á landeldi munu áfram styrkja stöðu íslensks fiskeldis og styðja við efnahagslega hagsæld á Íslandi,“ segir í greiningunni.

Þá kemur fram að gögn Matvælastofnunar „gera ráð fyrir að framleiðsla upp úr sjó á næsta ári verði um 55 þúsund tonn. Til samanburðar hefur framleiðslan undanfarin þrjú ár verið í kringum 45 þúsund tonn. Á næstu árum má jafnframt búast við umtalsverðri aukningu í landeldi. Metárið 2024 mun því að öllum líkindum aðeins bera titilinn um sinn.“