Tríó Ásbjörg, Heiða og Ragnheiður.
Tríó Ásbjörg, Heiða og Ragnheiður.
Listahópurinn Þrjátíu fingurgómar fagnar útgáfu bókar og tónlistar með ljóðum úr ljóðsögunni Mörsugur með tónleikum í dag, 4. janúar, í Norræna húsinu. Þar mun Heiða Árnadóttir söngkona flytja verkið í heild sinni en viðburðurinn hefst kl

Listahópurinn Þrjátíu fingurgómar fagnar útgáfu bókar og tónlistar með ljóðum úr ljóðsögunni Mörsugur með tónleikum í dag, 4. janúar, í Norræna húsinu. Þar mun Heiða Árnadóttir söngkona flytja verkið í heild sinni en viðburðurinn hefst kl. 16.

Mörsugur er ópera fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki, byggð á ljóðsögu eftir Ragnheiði Erlu Björnsdóttur. Verkið er unnið í samsköpunarferli Ásbjargar Jónsdóttur tónskálds og Ragnheiðar Erlu Björnsdóttur ljóðskálds og tónskálds, segir í tilkynningu. Þá fylgir óperunni myndbandsverk eftir Ásdísi Birnu Gylfadóttur. Verkið var frumflutt í Hörpu árið 2023 og hlaut tvær Grímutilnefningar, fyrir tónlistina og sönginn, en Heiða hlaut Grímuverðlaunin fyrir sönginn í verkinu.

„Ljóðsagan er brotakennd frásögn með útúrdúrum sem gerist í þjóðsagnakenndri íslenskri náttúru,“ segir jafnframt í tilkynningunni. „Í verkinu er reynt að ná utan um þokukennt hugarástand konu sem er á milli heima, á milli ljóss og myrkurs og þar sem minningar og raunskynjun renna í eitt.“