Kudrow Framúrskarandi í dramahlutverki.
Kudrow Framúrskarandi í dramahlutverki. — AFP
Nýlega horfði ég, mikill Friends-aðdáandi, á Netflix-seríuna No Good Deed. Þar fer Lisa Kudrow með aðalhlutverk þar sem hún færir sig áreynslulaust frá ástsælum grínhlutverkum yfir í dekkra, blæbrigðaríkara hlutverk

Magnea Marín Halldórsdóttir

Nýlega horfði ég, mikill Friends-aðdáandi, á Netflix-seríuna No Good Deed. Þar fer Lisa Kudrow með aðalhlutverk þar sem hún færir sig áreynslulaust frá ástsælum grínhlutverkum yfir í dekkra, blæbrigðaríkara hlutverk.

Þáttaröðin ögrar ekki einungis siðferði áhorfenda heldur einnig skynjun þeirra á eðli góðvildar og frjálsum vilja. Fylgst er með hjónunum Paul og Lydíu reyna að selja húsið sitt eftir mikinn harmleik innan fjölskyldunnar.

Við sjáum þau fylgjast með hugsanlegum kaupendum í gegnum öryggismyndavélar er þeir skoða vandlega uppgert heimilið. Á meðan deila þau sín á milli um framtíðina og leita leiða til að komast hjá fjárkúgunarhótunum. Þá eru, á opnu húsi hjónanna, kynntar þrjár ólíkar fjölskyldur sem allar hafa mikinn áhuga á að kaupa húsið.

Með blöndu af sálfræðilegri spennu og siðferðislegri tvíræðni fær serían áhorfendur til að velta fyrir sér hvort góðmennska geti verið raunverulega óeigingjörn, eða hvort hún feli alltaf í sér duldar, eigingjarnar hvatir.

Með áhugaverðum persónum og spennandi handriti veður No Good Deed á Netflix inn á grátt svæði siðferðisins og fær áhorfendur til að efast um hvort góðverk hafi alltaf góðar afleiðingar.

Höf.: Magnea Marín Halldórsdóttir