Kraftlyftingar
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Kraftlyftingakonan Sóley Margrét Jónsdóttir hafnaði í öðru sæti í kjörinu um íþróttamann ársins 2024 sem var kunngjört í Hörpu á laugardagskvöld. Knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir bar sigur úr býtum og ólympíska lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir hafnaði í þriðja sæti í kjörinu.
Árangur Sóleyjar Margrétar á árinu var stórbrotinn. Hún varð bæði heimsmeistari og Evrópumeistari í +84 kg flokki í fullorðinsflokki, auk þess að setja heimsmet í unglingaflokki, 23 ára og yngri. Sóley Margrét er einmitt 23 ára gömul, verður 24 ára í júní, og var því að ljúka sínu síðasta tímabili þar sem hún var gjaldgeng til unglingameta.
Hún varð fyrsti íslenski heimsmeistarinn í kraftlyftingum og fyrsta íslenska konan til að lyfta yfir 700 kílóum samanlagt í íþróttinni.
„Tilfinningin er virkilega góð. Þetta er gífurlegur heiður og mikil viðurkenning fyrir gott gengi á liðnu ári,“ sagði Sóley Margrét í samtali við Morgunblaðið um hvernig það hafi verið fyrir hana að hafna í öðru sæti í kjörinu um íþróttamann ársins.
Bjóst við að vera í topp þremur
Eftir að hafa náð slíkum árangri lék blaðamanni forvitni á að vita hvort Sóley Margrét hefði búist við því að bera sigur úr býtum og verða íþróttamaður ársins í fyrsta sinn.
„Ég var með alls engar væntingar nema bara að mæta í Hörpu, njóta kvöldsins og borða frían mat,“ sagði hún og hló. „Ég bjóst samt við því að vera í einu af þremur efstu sætunum í valinu,“ bætti Sóley Margrét hreinskilin við.
Þú varðst Evrópu- og heimsmeistari í fullorðinsflokki og settir heimsmet 23 ára og yngri. Hefði árið 2024 getað orðið eitthvað mikið betra hjá þér?
„Veistu, árið hefði bara mögulega ekki getað orðið betra. Öll markmið náðust og rúmlega það! Núna verður eiginlega bara erfitt fyrir mig að ná að toppa þetta ár,“ sagði hún í léttum tón.
Á heimsmeistaramóti fullorðinna lyfti Sóley 282,5 kílóum í hnébeygju, 200 í bekkpressu og 227,5 kg. í réttstöðulyftu. Samanlagt 710 kg og allt eru þetta Íslandsmet í opnum flokki fullorðinna, ásamt því að vera heimsmet U23 ára í samanlögðu.
Fallegt og mikilvægt
Sóley Margrét hefði líkt og hún kom sjálf inn á vart getað gert betur á liðnu ári. Spurð hvort hún væri í ljósi þess svekkt að hafa ekki hrósað sigri sagði Sóley Margrét auðmjúk:
„Að sjálfsögðu ekki! Ég er ótrúlega stolt af okkur öllum og Glódís Perla er frábær fyrirmynd.“
Hún var þá hæstánægð með að konur hefðu raðað sér í þrjú efstu sætin í kjörinu.
„Það er auðvitað frábært. Ég átti einmitt samræðu við Höllu Tómasdóttur forseta þar sem við ræddum um hve stutt er síðan keppnisíþróttir voru einungis fyrir karlmenn og enn styttra síðan konur byrjuðu að keppa í kraftaíþróttum.
Þannig að það að við vorum þarna þrjár efstar og þar af tvær úr kraftasporti er mjög fallegt og mikilvægt,“ sagði Sóley Margrét.
Fyrsti áratugur algjör negla
Þrátt fyrir ungan aldur er hún reynslubolti í kraftlyftingum. Sóley Margrét ætlar hvergi að slá slöku við í framhaldinu og er spennt fyrir árinu 2025.
„Ég horfi björtum augum á árið. Þó ég sé einungis 23 ára þá er ég að hefja tíunda árið mitt í kraftlyftingum. Þannig að nú mun ég setjast niður með mínu teymi og gera plan fyrir næsta áratug þar sem sá fyrsti er að líða. Fyrsti áratugurinn í kraftlyftingum var algjör negla þannig að við sjáum hvar og hvernig annar áratugurinn byrjar,“ sagði hún.
Á nýju ári mun bera hæst ferðalag til Asíu þar sem Sóley Margrét tekur þátt á heimsleikunum (e. World Games) í Kína.
„Á heimsmeistaramótinu í nóvember síðastliðnum hlaut ég keppnisrétt á heimsleikunum og þeir verða haldnir í Kína í ágúst,“ sagði kraftlyftingakonan Sóley Margrét Jónsdóttir að lokum í samtali við Morgunblaðið.