Heiðruð Zoe Zaldana fékk verðlaun fyrir bestan leik í aukahlutverki.
Heiðruð Zoe Zaldana fékk verðlaun fyrir bestan leik í aukahlutverki. — AFP/Robyn Beck
Mexíkóski glæpasöngleikurinn Emilia Pérez kom, sá og sigraði á Golden Globe-verðlaunahátíðinni 2025, sem fram fór í fyrradag, en kvikmyndin hlaut samtals fern verðlaun; sem besta myndin í flokki gamanmynda og söngleikja, besta myndin á tungumáli…

Mexíkóski glæpasöngleikurinn Emilia Pérez kom, sá og sigraði á Golden Globe-verðlaunahátíðinni 2025, sem fram fór í fyrradag, en kvikmyndin hlaut samtals fern verðlaun; sem besta myndin í flokki gamanmynda og söngleikja, besta myndin á tungumáli öðru en ensku og fyrir besta lagið. Þá fékk Zoe Saldana verðlaun fyrir bestan leik í aukahlutverki. BBC greinir frá. Myndin segir frá lögfræðingnum Ritu sem aðstoðar háttsettan glæpaforingja við að undirgangast kynskipti. Handritshöfundur og leikstjóri er Jacques Audiard. Með önnur hlutverk fara meðal annars þær Karla Sofía Gascón og Selena Gomez.

Þá var kvikmyndin The Brutalist einnig sigursæl á hátíðinni en hún vann til þrennra verðlauna, meðal annars sem besta kvikmynd í dramaflokki og fyrir bestu leikstjórnina, sem var í höndum Bradys Corbet. Þá var aðalleikari myndarinnar, Adrien Brody, valinn besti leikarinn í dramaflokki og Fernanda Torres besta leikkonan í dramaflokki fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni I'm Still Here. Demi Moore var valin besta leikkonan í flokki gamanmynda og söngleikja fyrir leik sinn í The Substance og í sama flokki fékk Sebastian Stan verðlaun sem besti karlkyns leikarinn. Þá var Kieran Culkin valinn besti aukaleikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni A Real Pain.

Í flokki sjónvarpsþáttaraða hlaut japanska þáttaröðin Shogun fern verðlaun og Baby Reindeer, sem meðal annars vakti mikla athygli hér á landi, tvenn.