Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
Nýjar reglur Evrópusambandsins um drónaflug hafa nú tekið gildi á Íslandi, en þær hafa verið í gildi innan Evrópu frá árinu 2020. „Þessar breytingar urðu hjá okkur rétt fyrir jól, en flestir drónaflugmenn hafa vitað af því að þær yrðu innleiddar hérlendis,“ segir Þórhildur Elínardóttir samskiptastjóri Samgöngustofu.
Nú verða allir sem ætla að fljúga drónum að skrá sig á vefnum flydrone.is og greiða skráningargjald sem er 5.665 krónur. Þeir sem aðeins fljúga léttum drónum undir
250 g þurfa einungis að skrá sig á vefnum. Hins vegar þurfa eigendur dróna sem vega meira en 250 g að kynna sér námsefni á vefnum og taka próf á skráningarvefnum sem veitir þeim svokölluð A1/A3-réttindi til drónaflugs, en réttindin gilda í fimm ár og gilda einnig innan Evrópu.
„Þeir sem hafa sambærileg réttindi frá Evrópusambandslandi og eru skráðir eigendur dróna þurfa ekki að fara í gegnum þetta ferli, og það sama má segja um fólk annars staðar að sem hefur réttindi til drónaflugs innan Evrópu,“ segir Þórhildur.
Í næstu viku verða fyrstu prófin til A2-réttinda haldin hjá Samgöngustofu, 14., 15. og 16. janúar, en búið
er að skrá í þessar dagsetningar og Þórhildur segir að væntanlega hafi þeir sem mikið stunda drónaflug skráð sig í prófin til að fá réttindin. Hægt er að fylgjast með á vef Samgöngustofu hvenær næst er laust í próf.
Mismunandi flokkar
„Breytingarnar snúast aðallega um flokkunina á drónum og hvar er verið að nota þá og eins er skráningarskylda færð til bókar,“ segir Þórhildur og bætir við að með þessum reglum séu gerðar meiri kröfur til drónaflugmanna, sérstaklega þeirra sem eru í flóknari starfsemi. „Eftir því sem áhættan er meiri, t.d. stærri drónar notaðir eða verið er að fljúga nálægt fólki, eru kröfurnar meiri. Hið sama má segja um þá sem eru að fljúga drónum í vísindaskyni, að þeir þurfa að lúta sömu hæfniskröfum.“
Í svokölluðum opnum flokki, þar sem áhætta er metin lítil, eru þrír undirflokkar: A1, þar sem má fljúga litlum drónum yfir fólki, en ekki yfir mannfjölda; A2, sem leyfir flug með C2-drónum sem mega vega allt að
4 kg nálægt fólki í öruggri fjarlægð; og A3 þar sem þess er krafist að flogið sé fjarri fólki og byggð. Í sérstökum flokki er flug sem er metið í miðlungsáhættu og krefst leyfis sem byggist
á áhættumati. Þar sem mikil áhætta er vegna stærðar dróna eða dróna sem flytja fólk þarf sérstaka vottun bæði fyrir dróna og rekstraraðila. Próf í flokkum A1 og A3 er hægt
að taka á netinu, en í flokki A2
þarf að taka prófið hjá Samgöngustofu.
„Nýjar reglur auka öryggi drónaflugs, öryggisvitund og áhættustjórnun drónaflugmanna,“ segir Þórhildur að lokum.