Magdalena Anna Torfadóttir
magdalena@mbl.is
JBT Marel var tekið til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallar Íslands síðastliðinn föstudag og af því tilefni var kauphallarbjöllunni hringt í evrópskum höfuðstöðvum JBT Marel síðasta þriðjudag.
Árni Sigurðsson aðstoðarforstjóri (e. President) sameinaðs félags JBT Marel segir að um sé að ræða mikilvægan áfanga og fyrirtækið sé stolt af því að vera sameinað skráð á íslenska markaðnum.
„Marel á sér um 40 ára sögu og hefur verið eitt stærsta skráða félagið á íslenska markaðnum frá 1992. Sameinaða félagið JBT Marel verður leiðandi á sínu sviði, styrkleikar félaganna falla vel saman og við getum gert mun meira saman en sitt í hvoru lagi,“ segir Árni.
Brian Deck forstjóri JBT Marel segir að mörg tækifæri felist í að vera einnig skráð á íslenska markaðnum.
„Sem dæmi hefur JBT ekki haft neina starfsemi á Íslandi og við ætlum að leita leiða til að sameina okkar kraftmikla hóp starfsfólks og tæknina en slíkt mun taka tíma. Áfram verður öflug starfsemi á Íslandi þar sem við getum áfram notið sérfræðiþekkingar innan félagsins sem og stuðnings frá sterkum hluthafahópi. Við hlökkum til að halda áfram vegferð okkar á íslenska hlutabréfamarkaðnum.“
Árni segir að það sem helst hafi þurft að huga að í tengslum við samrunann sé mannauðurinn.
„Mannauðurinn er mjög mikilvægur þegar kemur að því að sameina tvö fyrirtæki. Það er mikilvægt að allir rói í sömu átt,“ segir Árni. Samhliða skráningunni á markað var kynnt ný sýn og gildi fyrir félagið og næstu dagar fara í að heimsækja starfsstöðvar sameinaðs félags víðs vegar um heiminn og hitta starfsfólk.
Spurðir hvar þeir sjái tækifæri til hagræðingar segir Árni að þau liggi bæði á tekju- og kostnaðarhliðinni.