Furstadæmin Gunnlaugur Árni Sveinsson horfir á eftir boltanum á Al Hamra-vellinum þar sem keppnin heldur áfram í dag og lýkur á morgun.
Furstadæmin Gunnlaugur Árni Sveinsson horfir á eftir boltanum á Al Hamra-vellinum þar sem keppnin heldur áfram í dag og lýkur á morgun. — Ljósmynd/EGA
Gunnlaugur Árni Sveinsson úr GKG fór vel af stað með Evrópuúrvali áhugamanna í golfi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær en þá hófst Bonallack Trophy, keppni milli Evrópu og sameiginlegs liðs Asíu og Afríku

Gunnlaugur Árni Sveinsson úr GKG fór vel af stað með Evrópuúrvali áhugamanna í golfi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær en þá hófst Bonallack Trophy, keppni milli Evrópu og sameiginlegs liðs Asíu og Afríku.

Hann og Svíinn Algot Kleen léku saman í tveimur leikjum en þeir töpuðu fyrst naumlega, 2/1, fyrir mótherjum sínum í fjórmenningi.

Síðan höfðu þeir betur í fjórleik, með 3,5 vinningum gegn 1,5, en annar mótherja þeirra þar var Phichaksn Maichon frá Taílandi sem er í 22. sæti á heimslista áhugakylfinga og efstur Asíubúa.

Gunnlaugur er í 109. sæti á þeim lista og Kleen í 38. sæti.

Fyrsti keppnisdagurinn af þremur var í gær og staðan að honum loknum er 5:5. Í dag er leikið áfram í fjórmenningi og fjórleik en á lokadeginum á morgun er keppt í tvímenningi. Keppnisfyrirkomulag er það sama og í Ryder-bikar Evrópu og Bandaríkjanna í atvinnugolfinu.

Gunnlaugur er fyrsti Íslendingurinn sem kemst í Evrópuúrvalið en hann var valinn eftir frábæra frammistöðu á fyrsta tímabili sínu í háskólagolfinu í Bandaríkjunum. Þar leikur hann fyrir LSU-háskólann og er þegar búinn að vinna sterkt háskólamót og enda í öðru sæti á öðru en hann hefur náð bestum árangri nýliða á mótaröð háskólanna.