Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Allir þingmenn landsbyggðarkjördæmanna, þ.e. Suðurkjördæmis, Norðausturkjördæmis og Norðvesturkjördæmis, fá greiddar 185.500 krónur á mánuði í húsnæðis- og dvalarkostnað skv. reglum Alþingis um þingfararkostnað. Þetta kemur fram í svari skristofu Alþingis við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Hér er um að ræða 27 þingmenn; 10 þingmenn Suðurkjördæmis, 10 þingmenn Norðausturkjördæmis og 7 þingmenn Norðvesturkjördæmis.
Fjárhæðin er ætluð til að standa undir húsnæðis- og dvalarkostnaði á höfuðborgarsvæðinu eða sama kostnaði í kjördæminu, eigi viðkomandi þingmaður heima á höfuðborgarsvæðinu. Þingmaður sem á heimili utan höfuðborgarsvæðis og þiggur greiðslur fyrir daglegar ferðir milli heimilis og Reykjavíkur um þingtímann fær greiddan rúmlega þriðjung húsnæðis- og dvalarkostnaðar, eða 68.800 krónur mánaðarlega. Greiðslur vegna húsnæðis- og dvalarkostnaðar og ferðakostnaðar eru framtalsskyldar, en ekki skattskyldar.
Ef þannig háttar til að þingmaður sem á aðalheimili utan höfuðborgarsvæðis haldi annað heimili í Reykjavík getur hann skv. reglum Alþingis óskað eftir að fá greiddar 74.200 krónur á mánuði vegna þess. Með orðinu „aðalheimili“ þingmanns samkvæmt þessari reglu er átt við skráð íbúðarhúsnæði sem er aðsetur þingmannsins í kjördæminu og hann á eða hefur á leigu, hefur kostnað af allt árið og nýtir til búsetu.
Þá kveða reglurnar og á um að alþingismaður, sem hefur tímabundnar tekjur af útleigu íbúðarhúsnæðis síns í kjördæmi eða notar það fyrir uppkomin börn sín eða ættingja, eigi ekki rétt á greiðslu skv. fyrrgreindum reglum.