Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags, segir að samkvæmt eldra deiliskipulagi hafi verið gert ráð fyrir að hús myndi rísa þar sem Bjarg hyggst reisa fjölbýlishús á Hlíðarenda. Hins vegar virðist sem kaupendur íbúða í nærliggjandi húsum hafi ekki fengið upplýsingar um þau áform þegar þær íbúðir voru auglýstar til sölu á sínum tíma.
Tilefnið er umræða um fyrirhugaða uppbyggingu á lóðinni en fulltrúar íbúa í nærliggjandi húsum hafa lýst yfir áhyggjum af því að ljósvist í íbúðum þeirra verði ófullnægjandi ef áformin ná fram að ganga.
Fyrirhugað fjölbýlishús mun hafa heimilisfangið Haukahlíð 6 en lóðin nefnist I-reitur í skipulagi Hlíðarenda. Alls verða 85 íbúðir í húsinu sem verður fimm hæðir og með bílakjallara. Hefja á framkvæmdir í mars.
Skilur vel óánægju íbúa
„Ég skil vel óánægju íbúa sem keyptu útsýnisíbúðir á aðliggjandi lóð án þess að vera upplýstir um að í skipulagi var gert ráð fyrir að bygging myndi rísa á aðliggjandi lóð. Bjarg fékk lóðina úthlutaða frá Reykjavíkurborg og hefur unnið að undirbúningi verkefnisins samkvæmt ákvæðum gildandi skipulags sem er í samræmi við hverfið í heild. Það skipulag gerir m.a. ráð fyrir að fjarlægð milli húsa sé sú sama og í þeirri byggð sem fyrir er. Félagið hefur verið í góðri trú um að rétt hafi verið staðið að skipulagsferlinu og hagaðilar upplýstir um fyrirhugaða framkvæmd. Því þykir okkur leitt að þessi staða sé komin upp.“
Spurður hvort til greina komi að breyta hönnun hússins í Haukahlíð segir Björn að borgin hafi ekki haft samband við Bjarg varðandi hugmyndir um breytingar á reitnum.
Mörg verkefni í gangi
Björn bendir á að margt sé fram undan hjá Bjargi íbúðafélagi. Ásamt uppbyggingunni í Haukahlíð sé félagið að byggja 40 íbúðir í Safamýri 58-60. Þá sé Bjarg að fara að hefja byggingu 24 íbúða í Mosfellsbæ, 30 íbúða í Njarðvík, fimm íbúða á Flúðum og 28 íbúða á Akureyri. Síðar áformi Bjarg að hefja uppbyggingu 50 íbúða á svonefndri Veðurstofuhæð í Reykjavík en hún muni sennilega ekki hefjast fyrr en á næsta ári.