Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Ríkisstjórnin er í þeirri öfundsverðu stöðu sem við sköpuðum að stofnanir á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála hafa verið sameinaðar og einföldunarfrumvörp eru tilbúin til framlagningar.

Guðlaugur Þór Þórðarson

Nýr orkumálaráðherra fer mikinn fyrstu dagana í embættinu. Það er í sjálfu sér vel ef hann fylgir því eftir með verkum. Það er sérstaklega ánægjulegt að hann virðist hafa yfirgefið stefnu og verk (eða verkleysi) Samfylkingarinnar í orkumálum. Ráðherrann kvartar undan því að rammaáætlun hafi loks verið samþykkt á síðasta kjörtímabili eftir níu ár. Já, það var fyrst eftir að Sjálfstæðisflokkurinn tók við ábyrgð á rammaáætlun sem hún var samþykkt á Alþingi, ásamt einföldunarfrumvarpi sem gerir það að verkum að nú er hægt að stækka virkjanir án þess að fara í gegnum rammaferlið.

Skýr skilaboð Samfylkingar um kyrrstöðu í orkumálum

Sá árangur sem við náðum á síðasta kjörtímabili hefur leitt til þess að nú er verið að byggja bæði Hvammsvirkjun og Búrfellslund. Stóru orkufyrirtækin eru að stækka virkjanir á grunni lagabreytinganna. Kyrrstaðan er svo sannarlega rofin og það var ekki Samfylkingin sem rauf hana. Reyndar greiddu núverandi stjórnarflokkar ekki atkvæði með rammaáætlun, þannig að ef þeir hefðu náð sínu fram þá ríkti kyrrstaðan enn.

Á síðasta kjörtímabili voru skilaboðin frá meirihlutanum í Reykjavík, undir forystu Samfylkingarinnar, að það væri ekki réttlætanlegt að virkja meira. Síðasta ríkisstjórn Samfylkingarinnar gekk raunar þannig fram að hún breytti allri vinnu verkefnisstjórnar um rammaáætlun og tók út álitlega virkjunarkosti og þá sérstaklega vatnsaflskosti og setti fjölda kosta í vernd. Einn þingmaður Samfylkingarinnar, Kristján Möller, lýsti þessum vinnubrögðum þannig að verið væri að að eyðileggja rammaáætlun. Við sjálfstæðismenn vorum sammála honum og börðumst gegn þessum skemmdarverkum Samfylkingarinnar en allt kom fyrir ekki.

Hraðamet slegið á síðasta kjörtímabili

Núverandi ríkisstjórn er í þeirri öfundsverðu stöðu sem við sköpuðum að stofnanir á málefnasviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála hafa verið sameinaðar og einföldunarfrumvörp eru tilbúin til framlagningar. Fleiri frumvörp, svo sem varðandi orkuöryggi, voru komin langt á veg í tíð fyrri ríkisstjórnar og nýjum ráðherra því ekkert að vanbúnaði að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnin var á síðasta kjörtímabili í orkumálum. Þá liggja tvær rammaáætlanir fyrir klárar til framlagningar á Alþingi og ein verður tibúin á næstu mánuðum.

Það kemur til af því að aldrei hefur verið unnið jafn hratt að þessum málum eins og á síðasta kjörtímabili. Margt fleira mætti telja upp. Það er hins vegar áhyggjuefni að ráðherrann segist ekki ætla að leggja tilbúna ramma fyrir þingið, heldur einungis einn á hverju þingi. Af hverju leggur hann ekki fram þá vinnu sem nú þegar er tilbúin fyrir þingið?

Staðreyndin er sú að á síðasta kjörtímabili var áralöng kyrrstaða rofin í orkumálum. Gríðarlega umfangsmikil vinna átti sér stað varðandi einföldun stofnanaskipulags og regluverks og grunnur var lagður að bjartri grænni framtíð í málaflokknum.

Það er ekki stórmannlegt af ráðherranum að reyna að blekkja fólk með því að staðan og búið sem hann tekur nú við séu hans verk. Hver verður að fá að fljúga eins og hann er fiðraður, en verst er ef fjaðrirnar eru stolnar.

Höfundur er þingmaður Reykvíkinga.

Höf.: Guðlaugur Þór Þórðarson