Stjórnvöld í Katar sögðu í gær að viðræður um vopnahlé í átökunum á Gasasvæðinu væru nú á lokastigi og að þau væru vongóð um að samkomulag gæti náðst „mjög bráðlega“.
Katar, Bandaríkin og Egyptaland hafa haft milligöngu um vopnahlésviðræður á milli Ísraels og hryðjuverkasamtakanna Hamas undanfarna mánuði, en viðræðurnar hafa nokkrum sinnum siglt í strand.
Aukinn kraftur hefur hins vegar verið settur í viðræðurnar á síðustu dögum, og sagði Majed al-Ansari, talsmaður katarska utanríkisráðuneytisins, að menn væru mjög bjartsýnir um að viðræðurnar væru á lokametrunum. „Við höfum náð þeim punkti þar sem stóru málin, sem komu í veg fyrir að samkomulag gæti náðst, hafa verið tekin fyrir,“ sagði Ansari.
Heimildarmenn AFP-fréttastofunnar innan Hamas-samtakanna sögðu í gær að gert væri ráð fyrir að um 1.000 palestínskum föngum yrði sleppt úr fangelsum í Ísrael í skiptum fyrir 33 af þeim gíslum sem samtökin tóku í hryðjuverkunum
7. október 2023.
Þá sögðu ísraelskir fjölmiðlar í gær að samkomulagið hefði ákvæði um að Ísraelsher gæti haldið úti „hlutlausu svæði“ innan Gasasvæðisins á fyrsta stigi vopnahlésins.