Ferðalag Líf og leikur í Palermo á Sikiley, sem er vinsæll staður.
Ferðalag Líf og leikur í Palermo á Sikiley, sem er vinsæll staður. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Fjöldi fólks hefur góða þekkingu á tilteknum svæðum og er áfram um að kynna þau öðrum. Okkur er í mun að komast í samband við þetta fólk og nýta krafta þess ef hugmyndir eru framkvæmanlegar,“ segir Þórunn Reynisdóttir framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Fjöldi fólks hefur góða þekkingu á tilteknum svæðum og er áfram um að kynna þau öðrum. Okkur er í mun að komast í samband við þetta fólk og nýta krafta þess ef hugmyndir eru framkvæmanlegar,“ segir Þórunn Reynisdóttir framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar. Ferðaskrifstofan auglýsti á dögunum eftir fólki sem kynni að vera með góðar hugmyndir að áhugaverðum áfangastöðum sem það vildi setja upp leiðangur til og vera í hlutverki fararstjórans. Viðtökur hafa verið góðar, um 50 erindi voru komin í hús nú um miðja vikuna og áfram er hægt að stimpla sig inn.

Evrópa og Asía

Sólarferðir eru hryggjarstykki í starfsemi Úrvals-Útsýnar. Sérferðir eru einnig margar og hvað þær varðar þarf alltaf vera með eitthvað nýtt í boði. Kvikmyndir, bækur eða efni í fréttum getur alltaf vakið áhuga fólks á löndum og ákveðnum stöðum.

„Við höfum áður bryddað upp á því að auglýsa eftir fólki með góðar hugmyndir og reynslan er góð. Með þessu erum við meðal annars að breikka vöruframboð okkar en starfsemi ferðaskrifstofu þarf sífellt að vera í þróun,“ segir Þórunn. Óskað er eftir greinargóðri lýsingu á hvernig ferð fólk vill setja upp. Hvort hún verður að veruleika ræðst af líklegri eftirspurn, verði og mati kunnáttufólks á því hvað viðskiptavinir séu líklegir til að vilja.
Ferðir um lönd eins og Ítalíu, Spán, Portúgal og Grikkland hafa oft verið nefndar í þeim erindum sem Úrvali-Útsýn hafa verið send síðustu daga. Margir hafa líka áhuga á að efna til Asíuferða, svo sem til Balí, Taílands og Indlands. Þá kemur Tyrkland sterkt inn, en þar eru Íslendingum nú að opnast áhugaverðir ferðakostir með beinu flugi Icelandair til Istanbúl sem hefst næsta haust.

Staðarþekking og þjónustulund mikilvæg

„Í vaxandi mæli efna einyrkjar til ferða, en í því sambandi getur verið góður kostur að fara í samstarf við ferðaskrifstofu. Við leitum til dæmis að hugmyndum að ferðum fyrir eldri borgara og svo golf- og sportferðum. Einnig að sérferðum og í slíkum til Ítalíu eru Gardavatnið, Róm og Sikiley alltaf sterkir staðir og ferðir þangað vinsælar,“ segir Þórunn Reynisdóttir og að síðustu:

„En þótt hugmynd að ferð sé ljómandi góð þarf margt fleira að koma til. Margir hafa menntun í leiðsögn, sem er mikilvægur grunnur, eins og staðþekking og þjónustulund. Einnig að geta með öryggi farið fyrir stórum hópi og leyst úr vandamálum sem upp geta komið. Og fari þetta allt saman getur útkoman orðið skemmtileg. Takist vel til myndast um suma fararstjóra hópar sem fylgja honum í hvern túrinn á fætur öðrum – land úr landi – svo úr verða alls konar ævintýri.“