Kauphöll Haraldur Þórðarson forstjóri Skaga segist telja að áhrif innkomu Íslenskra verðbréfa í samstæðuna séu að einhverju leyti vanmetin og að í því felist mikið virði. Tvöfalda eignir í stýringu, því fylgir stærðarhagkvæmni.
Kauphöll Haraldur Þórðarson forstjóri Skaga segist telja að áhrif innkomu Íslenskra verðbréfa í samstæðuna séu að einhverju leyti vanmetin og að í því felist mikið virði. Tvöfalda eignir í stýringu, því fylgir stærðarhagkvæmni. — Morgunblaðið/Hákon
Skagi, móðurfélag tryggingafélagsins VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og Íslenskra verðbréfa, hefur verið í miklu umbreytingarferli í kjölfar sameiningar VÍS og Fossa, sem lauk í október árið 2023. Um síðastliðin áramót lauk formlega flutningi tryggingarekstrar í dótturfélagið VÍS tryggingar hf

Magdalena Anna Torfadóttir

magdalena@mbl.is

Skagi, móðurfélag tryggingafélagsins VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og Íslenskra verðbréfa, hefur verið í miklu umbreytingarferli í kjölfar sameiningar VÍS og Fossa, sem lauk í október árið 2023. Um síðastliðin áramót lauk formlega flutningi tryggingarekstrar í dótturfélagið VÍS tryggingar hf. og er samstæðan því komin í sitt framtíðarhorf.

Unnið hefur verið að því að samþætta starfsemi eininga innan samstæðunnar með það að markmiði að nýta sóknarfæri sem myndast til tekjuaukningar samhliða því að halda aftur af kostnaðarhækkunum. Nýlegar aðgerðir til þess að auka hagkvæmni leiða til 300 milljóna króna árlegs sparnaðar þegar áhrif þeirra eru komin fram að fullu.

Spurður hvort hagræðingaraðgerðum innan samstæðunnar sé lokið segir Haraldur Þórðarson forstjóri Skaga að félagið muni ávallt horfa til þess að haga rekstri samstæðunnar með sem hagkvæmustum hætti. Hagræðing getur tekið á sig ýmsar myndir sem koma bæði fram á tekju- og kostnaðarhliðinni. Hagræðing þýði því ekki endilega að verið sé að draga saman seglin heldur einnig sókn á réttum forsendum.

„Við munum ávallt leita leiða til að hagræða í rekstri enda er það viðvarandi verkefni. Kostnaður er dálítið eins og mittismálið; leitnin er alltaf út á við. Svo þarf reglulega að gera atlögu. Tekjur fylgja svo sókn og vexti. Í samstæðu Skaga getum við nú boðið viðskiptavinum okkar upp á breiðara vöruframboð en félögin gátu hvert í sínu lagi og það hefur mælst vel fyrir. Og með því að vinna á sameiginlegum innviðum getum við veitt víðtækari þjónustu með minni tilkostnaði. Að ná takti í samstæðu eins og okkar og viðhalda honum tekur tíma og útheimtir að við munum alltaf leita að möguleikum til að gera betur. Þetta er viðvarandi verkefni,“ segir Haraldur.

Mikið virði í Íslenskum verðbréfum

Haraldur segist telja að áhrif innkomu Íslenskra verðbréfa í samstæðuna séu að einhverju leyti vanmetin og að í því felist mikið virði bæði út frá vexti í fjármálastarfsemi hjá samstæðunni og einnig út frá rekstrarlegum sjónarmiðum.

„Með tilkomu Íslenskra verðbréfa í samstæðuna erum við að nær tvöfalda eignir í stýringu og því fylgir stærðarhagkvæmni sem mun koma hratt fram. Enn fremur býr mikil reynsla og þekking í starfsfólki félagsins og með því að sameina félagið við SIV eignastýringu verður til eitt sterkasta eignastýringarteymi landsins,“ segir Haraldur.

Íslensk verðbréf, sem er eitt elsta fjármálafyrirtæki landsins, er með starfsemi á Norðurlandi og segir Haraldur mikil tækifæri felast í að þjónusta það öfluga markaðssvæði.

„Norðurlandið er stórt markaðsvæði sem fer vaxandi og hefur hingað til ekki verið þjónustað sem skyldi. Það liggja mikil tækifæri í að byggja upp og auka enn við starfsemi okkar þar,“ segir Haraldur. „Enn fremur eru Íslensk verðbréf sterkt vörumerki hjá einstaklingum og fjölskyldum um allt land.“

Mikill tekjuvöxtur í fjármálastarfsemi

Síðasta ár var fyrsta heila starfsár nýrrar samstæðu Skaga. Að sögn Haralds var mikilvægum áföngum náð í vegferð félagsins í átt að langtímamarkmiðum sem miðast við árslok 2026 og uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins bar þess glöggt merki.

„Það hefur gengið mjög vel hjá VÍS og mikill árangur náðst í að bæta grunnrekstur tryggingastarfseminnar á sama tíma og ánægja viðskiptavina er að aukast. Við sjáum mikinn tekjuvöxt í fjármálastarfseminni samhliða markvissri stækkun á efnahag bankans. Loks voru kaupin á Íslenskum verðbréfum mikilvægt skref í átt að stærðarhagkvæmni í eignastýringarstarfseminni hjá okkur. Það er því óhætt að segja að við séum á góðri leið,“ segir Haraldur.

Spurður hvernig hann meti horfur á mörkuðum á árinu kveðst Haraldur vera bjartsýnn.

„Við erum að koma úr tiltölulega þungu árferði undanfarin þrjú árin og það er ánægjulegt að sjá að það er farið að rofa til. Það mun þó ekki gerast á einni nóttu en ég tel að við munum sjá nokkurn meðbyr á mörkuðum næstu misserin,“ segir Haraldur að lokum.

Höf.: Magdalena Anna Torfadóttir