Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Töluverð umsvif eru í atvinnulífinu í Grindavík, þrátt fyrir að eldsumbrot hafi gengið nærri bæjarbúum og fyrirtækjum undanfarin misseri, þótt eðlilega hafi dregið þar nokkuð úr. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindavíkurbæ sem birt hefur verið á vef bæjarins.
Í vikunni var gerð könnun meðal fyrirtækja í bænum til að varpa ljósi á umfang atvinnustarfseminnar í Grindavík. Var sjónum beint að því hve margir starfsmenn grindvískra fyrirtækja væru að störfum í bænum.
Í ljós kom að þeir eru 760 talsins og starfa hjá 34 fyrirtækjum. Var staðið að könnuninni á þann veg að tölvupóstur var sendur á netfangalista fyrirtækja í bænum og spurt um hversu margir hefðu mætt til vinnu miðvikudaginn 15. janúar sl. Fram kemur að nokkuð góð svörun hafi verið, en jafnframt var hringt í nokkur fyrirtæki sem ekki svöruðu könnuninni, þótt vitað væri að þau væru með starfsemi í bænum.
Þegar litið er til skiptingar starfsfólks eftir atvinnugreinum kemur í ljós að alls störfuðu 330 manns hjá sjö ferðaþjónustufyrirtækjum téðan dag. Hjá fyrirtækjum í sjávarútvegi og tengdri starfsemi unnu 250 manns, en 11 fyrirtæki eru starfandi í slíkum greinum í bænum. Hjá fyrirtækjum í iðnaði og þjónustu, sem eru 12 talsins, störfuðu 126, en 28 manns unnu við fiskeldi hjá þremur fyrirtækjum í þeirri grein. Loks voru 26 starfsmenn bæjarins að störfum þennan dag.
Þá eru að störfum í Grindavík starfsmenn fyrirtækja með aðsetur annars staðar. Þar á meðal eru t.a.m. starfsmenn stærri verktakafyrirtækja.