Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Hann tekur við stöðunni formlega 4. febrúar eftir að þing kemur saman en í færslu á Facebook, þar sem hann greinir frá ráðningunni, segist hann þegar hafa hafið störf

Þórður Snær Júlíusson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Hann tekur við stöðunni formlega 4. febrúar eftir að þing kemur saman en í færslu á Facebook, þar sem hann greinir frá ráðningunni, segist hann þegar hafa hafið störf.

Þórður Snær skipaði þriðja sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í alþingiskosningunum og var kjörinn á þing. Hann ætlar þó ekki að þiggja sætið. Ástæðan er skrif fjölmiðlamannsins fyrrverandi á blogginu „Þessar elskur“ sem hann hélt úti árin 2006-2007. Fyrst var fjallað um bloggskrif Þórðar í Spursmálum á mbl.is.

Undir dulnefninu Þýska stálið skrifaði hann óviðurkvæmilegar greinar um konur sem hann sagði m.a. vera lævísar, miskunnarlausar, undirförlar tíkur. Skrifin vöktu mikla athygli og þótti mörgum réttast að hann stigi til hliðar. Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sagði að skrif Þórðar endurspegluðu engan veginn stefnu flokksins sem hefði verið í fararbroddi á sviði jafnréttismála. Hann ætti að skammast sín. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og ráðherra, sagði Þórð þurfa „að hreinsa þetta almennilega upp til að endurheimta trúverðugleika sinn“.

Tveimur vikum fyrir kosningar tilkynnti Þórður að hann myndi ekki taka sæti á þingi ef hann yrði kjörinn. Í yfirlýsingu á Facebook kvaðst hann bera alla ábyrgð á þeim bloggskrifum sem hefðu birst og að hann skammaðist sín djúpt fyrir þau. „Nú er mér ljóst að áframhaldandi vera mín á lista er til trafala og er mörgum þung. Þess vegna tilkynni ég hér með að ég mun ekki taka þingsæti hljóti ég slíkt í kosningunum eftir tvær vikur heldur eftirláta næstu konu á listanum sæti mitt,“ skrifaði Þórður sem nú hefur fengið annað hlutverk innan þingflokksins.

Ekki náðist í Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar, í gærkvöldi.