Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Verktakar voru í gær að ryðja íshrönnum af Arnarbælisvegi í Ölfusi, en síðustu daga hefur Ölfusá þar runnið yfir bakka. Frosthörkur í síðustu viku mynduðu á þessum slóðum klakastíflu í ánni sem hefur verið mjög vatnsmikil síðustu sólarhringa vegna leysinga á hálendinu. Afleiðingar og skemmdir vegna flóða eru víða á Suðurlandi, við stórfljót en líka þar sem minni lækir hafa breitt úr sér. Girðingar hafa eyðilagst og hugsanlega ræktarlönd, en slíkt mun skýrast betur þegar frá líður.
„Við Arnarbæli hefur þetta sloppið ótrúlega vel. Núna erum við að ryðja veginn, ýta burt ísstykkjum sem eru gríðarþung. Svo hefur runnið úr veginum hér svo koma þarf með malarfyllingu,“ segir Grétar Einarsson verkstjóri hjá Vegagerðinni á Suðurlandi. Hann var á vettvangi í gær með sínum mönnum og lagði á ráðin um aðgerðir. Þar hafði líka verið Birgir Örn Arnarson frá Selfossi, sem er á myndinni hér til hliðar. Hann komst þó aðeins hálfa leið – enda lokuðu klakastykki vegi.
Síðdegis í gær hélst fyrrgreind klakastífla í Ölfusá enn þótt vatn rynni líka fram hjá henni í nokkrum mæli. Á móti kom að vatnsmagnið í stórfljótinu hafði minnkað mikið í hlýindum um helgina, rétt eins og fylgjast hefur mátt með á mælitækjum Veðurstofu Íslands. Mál austur við Ölfusá og víðar á Suðurlandi gætu svo tekið nýja stefnu nú í vikunni þegar spáð er frosti.