„Þetta er ótrúlega sorglegt. Hér er einkaaðili sem sýnir áhuga á að byggja nýja hveitiverksmiðju á mjög heppilegum stað en opinber eftirlitsstofnun ber fyrir sig Evróputilskipun sem líklega á að breyta,“ segir Helgi Eyleifur Þorvaldsson, …

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

„Þetta er ótrúlega sorglegt. Hér er einkaaðili sem sýnir áhuga á að byggja nýja hveitiverksmiðju á mjög heppilegum stað en opinber eftirlitsstofnun ber fyrir sig Evróputilskipun sem líklega á að breyta,“ segir Helgi Eyleifur Þorvaldsson, aðjúnkt við brautarstjórn í búfræði við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, í framhaldi af frétt Morgunblaðsins um að Kornax-verksmiðjan verði lögð niður.

Helgi er einn höfunda skýrslunnar Bleikir akrar, sem styrkt var af matvælaráðuneytinu, en einn kafli skýrslunnar fjallar um öryggislager.

„Á Norðurlöndunum er gert ráð fyrir 6-12 mánaða öryggislager en á Íslandi hefur lagerinn verið 3-4 mánuðir. Þegar Kornax-verksmiðjan leggst af verða hveitibirgðir í landinu aðeins til eins mánaðar.“

Spurður hvort kornræktin í landinu geti nýtt verksmiðju eins og verið sé að loka í Korngörðum segir Helgi að það sé vel hægt þótt markaðurinn sé lítill.

Vandi Kornax er tvíþættur. Annars vegar hafa Faxaflóahafnir sagt upp húsaleigusamningi og hins vegar fær fyrirtækið ekki starfsleyfi fyrir nýja verksmiðju á Grundartanga.

Húsið rifið af öryggisástæðum

Gunnar Tryggvason hafnarstjóri Faxaflóahafna segir að húsnæði Kornax við Korngarða verði rifið.

„Það er gert af öryggisástæðum og ekkert kemur í staðinn, í bili að minnsta kosti,“ segir Gunnar.

Arnar Þórisson forstjóri Líflands segir að heilbrigðiseftirlit Vesturlands hafi ekki verið tilbúið til að gefa starfsleyfi fyrir starfseminni á Grundartanga og þar sem leigusamningur við Faxaflóahafnir hafi ekki fengist framlengdur sé ekki um annað að ræða en að leggja verksmiðjuna niður.

Hann segir jafnframt að ef Matvælastofnun hefði verið leyfisveitandi þá hefðu þeir fengið starfsleyfi fyrir hveitimyllunni.

Kornax-myllan hefur verið í notkun síðan 1986 og segir að Arnar að ný mylla kosti á þriðja milljarð króna.