Brosmild Inga Sæland segist ekkert vera að stressa sig á því að flokkurinn hafi þegið 240 milljónir vitandi að hann uppfyllti ekki lagaskilyrði til þess.
Brosmild Inga Sæland segist ekkert vera að stressa sig á því að flokkurinn hafi þegið 240 milljónir vitandi að hann uppfyllti ekki lagaskilyrði til þess. — Morgunblaðið/Kristófer Liljar
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra, segir í samtali við Morgunblaðið að hún hafi verið meðvituð um að flokkurinn uppfyllti ekki lagaskilyrði fyrir opinberum styrkveitingum til stjórnmálaflokka

Andrea Sigurðardóttir

andrea@mbl.is

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra, segir í samtali við Morgunblaðið að hún hafi verið meðvituð um að flokkurinn uppfyllti ekki lagaskilyrði fyrir opinberum styrkveitingum til stjórnmálaflokka. Flokkurinn ætli þó ekki að endurgreiða þær 240 milljónir króna sem hann hefur ranglega fengið í styrki frá árinu 2022.

Stjórnmálaflokkar eiga rétt á umtalsverðum opinberum styrkjum samkvæmt lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka. Meðal skilyrða til úthlutunar, sem lögfest voru árið 2021, er að flokkurinn sé skráður sem slíkur hjá Skattinum en því fylgir aukin upplýsingaskylda um fjárreiður flokksins.

Inga segir að farist hafi fyrir að breyta skráningu flokksins þar sem landsfundur hans hafi ekki verið haldinn í sex ár, þrátt fyrir að samþykktir flokksins kveði á um að landsfundur sé haldinn ekki sjaldnar en á þriggja ára fresti. Af sömu samþykktum er þó ekki augljóst að atbeina landsfundar þurfi til.

Gerðuð þið ykkur grein fyrir því að þið uppfylltuð ekki skilyrði til þess að hljóta þessa ríkisstyrki?

„Já, við vissum af þessum formgalla og ætluðum bara að laga hann núna, sem við gerum í febrúar, og við erum ekkert að stressa okkur – ef við getum sagt það – á nákvæmlega þessu.“

Hún segir hins vegar ekki standa til að endurgreiða þá styrki sem flokkurinn hafi veitt viðtöku undanfarin ár, án þess þó að rökstyðja það neitt nánar.

Blaðamaður benti á að öryrkjum og öldruðum sem fengju ofgreitt frá hinu opinbera bæri að endurgreiða og spurði hvort annað gilti um stjórnmálaflokka.

„Ég held að þú ættir að svara þessari spurningu sjálf,“ sagði Inga og gekk sína leið án þess að gefa kost á frekari spurningum eða svörum.

Inga segir um „mjög lítinn“ formgalla að ræða, en hann gerir það þó að verkum að flokkur hennar stenst ekki lagaskilyrði fyrir úthlutun styrkja.

Flokkurinn verður af styrk í ár

Ekkert í samþykktum Flokks fólksins virðist koma í veg fyrir að framkvæmdastjóri eða stjórn flokksins skili inn gögnum og uppfæri skráninguna hjá Skattinum og því ekki ljóst af hverju Inga telur nauðsynlegt að það bíði landsfundar.

Boðað var til landsfundar síðastliðinn mánudag, en hann verður haldinn í flokksskrifstofunni í Grafarvogi laugardaginn 22. febrúar klukkan 10.

Í fjölmiðlum í gær kom fram að Inga hefði væntingar um að fá ríkisstyrkinn eftir að landsfundurinn hlutaðist til um breytta skráningu, að hið opinbera frestaði úthlutuninni þangað til.

Lögum samkvæmt ber hins vegar að greiða styrki úr ríkissjóði til þeirra stjórnmálaflokka sem standast skilyrði laganna fyrir 25. janúar hvers árs. Ekki er að finna lagaheimildir fyrir því að veita frest og greiða styrk út síðar. Flokkurinn þarf því að uppfylla öll lagaleg skilyrði ekki síðar en á föstudag 24. janúar til þess að eiga rétt á styrk úr ríkissjóði í ár.

Gjaldkerinn ekki prókúruhafi

Inga Sæland hefur áður sagt að flokkurinn hafi verið stofnaður á eldhúsgólfinu hjá henni árið 2016. Sjálf hefur Inga játað að hafa verið „allt í öllu“ fyrstu árin en Jónína Björk Óskarsdóttir hafi tekið við sem gjaldkeri í lok 2018. Samkvæmt fyrirtækjaskrá er Inga Sæland þó enn prókúruhafi ásamt aðstoðarmanni sínum, en gjaldkeri flokksins hefur ekki prókúru.

Frá stofnun hefur Flokkurinn haldið tvo landsfundi, sá fyrri var haldinn árið 2018 og árið 2019 fór aukalandsfundur fram. Engar heimildir er að finna fyrir því hvað fór fram á þessum fundum og hverjir voru kjörnir í stjórn og önnur trúnaðarstörf. Þá liggja ályktanir fundanna ekki heldur fyrir.

Engar upplýsingar er að finna um starfsmenn flokksins, en samkvæmt ársreikningi voru starfsmenn á launaskrá flokksins tveir árið 2023.