Körfuboltinn
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Esther Marjolein Fokke var stigahæst hjá Þór frá Akureyri þegar liðið hafði betur gegn toppliði Hauka í 15. umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik í Höllinni á Akureyri í gær.
Leiknum lauk með sex stiga sigri Þórsara, 86:80, en Fokke skoraði 27 stig, tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu. Þetta var annar sigur Þórsara gegn Haukum á fjórum dögum en Þórsarar höfðu einnig betur, 94:87, í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar á Akureyri á laugardaginn.
Þórsarar eru með 22 stig í öðru sæti deildarinnar og hafa unnið níu deildarleiki í röð en liðið tapaði síðast fyrir Haukum, á Ásvöllum þann 16. nóvember. Haukar eru á toppnum með 24 stig en liðið hafði unnið fimm leiki í röð fyrir leik gærdagsins.
Þórsarar voru miklu sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu með 23 stigum í hálfleik, 61:38. Haukum tókst að minnka forskot Þórsara í fimm stig í þriðja leikhluta, 71:66, en Þórsarar héldu út í fjórða leikhluta og fögnuðu sigri.
Madison Sutton skoraði 19 stig fyrir Þórsara, tók 13 fráköst og gaf fjórar stoðsendingar en Lore Devos var stigahæst hjá Haukum með 22 stig, tólf fráköst og þrjár stoðsendingar.
Annar sigur Keflavíkur í röð
Jasmine Dickey var stigahæst hjá Íslandsmeisturum Keflavíkur þegar liðið tók á móti nýliðum Hamars/Þórs í Keflavík en leiknum lauk með sjö stiga sigri Keflavíkur, 84:77. Dickey skoraði 16 stig, tók níu fráköst og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum.
Þetta var annar sigurleikur Keflavíkur í röð en liðið er með 20 stig í þriðja sæti deildarinnar á meðan Hamar/Þór, sem hefur tapað tveimur leikjum í röð, er í áttunda sætinu með 10 stig.
Hamar/Þór leiddi með þremur stigum að fyrsta leikhluta loknum, 25:22, en Keflavík sneri leiknum sér í vil í öðrum leikhluta og leiddi með átta stigum í hálfleik, 48:40.
Keflvíkingar voru mun sterkari í þriðja leikhluta og leiddu með 13 stigum að honum loknum, 70:57. Hamri/Þór tókst ekki að snúa leiknum sér í vil í fjórða leikhluta.
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 14 stig fyrir Keflavík, tók sjö fráköst og gaf eina stoðsendingu en Hana Ivanusa var stigahæst hjá Hamri/Þór með 16 stig, sex fráköst og eina stoðsendingu.
Valur fjarlægðist botnsvæðið
Valur styrkti stöðu sína í sjöunda sæti deildarinnar með naumum sigri gegn nýliðum Aþenu, 63:61, á Hlíðarenda. Alyssa Cerino var stigahæst hjá Valskonum með 16 stig, fjögur fráköst og eina stoðsendingu.
Valskonur eru með 12 stig í sjöunda sætinu, líkt og Stjarnan, og hafa unnið sex leiki í deildinni á tímabilinu en Aþena, sem er í 9. sætinu með sex stig, hefur tapað sjö deildarleikjum í röð.
Valur byrjaði leikinn betur og leiddi með ellefu stigum að fyrsta leikhluta loknum, 26:15. Aþenu tókst að minnka forskot Valskvenna í átta stig í öðrum leikhluta og var staðan 43:35, Val í vil, í hálfleik.
Mikið jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik en Valskonur létu forystuna þó aldrei af hendi og fögnuðu naumum sigri í leikslok.
Jiselle Thomas skoraði 11 stig fyrir Val, tók eitt frákast og gaf tvær stoðsendingar en Ajulu Thatha var stigahæst hjá Aþenu með 11 stig og fimm fráköst.