Davos Selenskí sagði að ríki Evrópu þyrftu að eyða meiru í varnarmál.
Davos Selenskí sagði að ríki Evrópu þyrftu að eyða meiru í varnarmál. — AFP/Fabrice Coffrini
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að ríki Evrópu þyrftu að þróa sameiginlega varnarstefnu og auka útgjöld sín til varnarmála til þess að tryggja öryggi álfunnar gegn utanaðkomandi ógnum. Ummæli Selenskís féllu á hinni árlegu efnahagsráðstefnu í Davos, en hún hófst á mánudaginn

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að ríki Evrópu þyrftu að þróa sameiginlega varnarstefnu og auka útgjöld sín til varnarmála til þess að tryggja öryggi álfunnar gegn utanaðkomandi ógnum.

Ummæli Selenskís féllu á hinni árlegu efnahagsráðstefnu í Davos, en hún hófst á mánudaginn. Sagði Selenskí í ræðu sinni þar að ríki álfunnar þyrftu að standa á eigin fótum og leggja hart að sér til þess að geta orðið sterk og ómissandi í alþjóðamálum.

„Við þurfum sameiginlega öryggis- og varnarmálastefnu og öll ríki Evrópu þurfa að vera reiðubúin til þess að eyða eins miklu í varnarmál og hin raunverulega þörf krefur, ekki bara eins miklu og þau hafa vanist eftir áralanga vanrækslu,“ sagði Selenskí, sem ítrekaði að Evrópa yrði að geta tryggt sitt eigið öryggi án aðkomu annarra.

Selenskí nefndi sem dæmi að Rússar hefðu nú fengið liðsauka frá Norður-Kóreu og að norðurkóreskir hermenn tækju nú þátt í bardögum í Evrópu, nær Davos en Pjongjang. Þá hefðu Rússar og Íranar nýlega gert með sér samkomulag um aukið samstarf í efnahags- og varnarmálum. „Gegn hverjum beinist slíkt samkomulag? Gegn ykkur, gegn okkur öllum,“ sagði Selenskí og bætti við að mæta þyrfti slíkum ógnum saman.

Selenskí vék einnig að Donald Trump Bandaríkjaforseta og stefnu Bandaríkjanna í varnar- og öryggismálum, sem hefði færst frá Evrópu til Mið-Austurlanda og Kyrrahafssvæðisins, jafnvel undir stjórn Bidens. „Mun Trump forseti taka eftir Evrópu? Sér hann NATO sem nauðsyn? Mun hann virða stofnanir ESB?“ spurði Selenskí m.a. í ræðu sinni.