Snævar Jón Andrésson fæddist 22. janúar 1985 á Siglufirði og ólst þar upp.
„Að alast upp á Siglufirði var yndislegt, það að fá það frelsi sem börn fá úti á landi og fara út að leika sér frá morgni til kvölds var dásamlegt. Ég man hreinlega ekki eftir að hafa leiðst nokkurn tíma. Sem krakki sótti ég þó mikið í að vera í kringum „kallana“ á kaffistofu Olís en þangað sóttu alls konar karlar sem að voru að spjalla og sótti ég oft í það frekar en að vera úti að leika mér með jafnöldrunum. Þar má segja að áhugi minn á fólki hafi kviknað og er gríðarlega góður grunnur að prestsstarfinu.
Verandi langyngstur af systkinahópnum upplifði ég það frekar sem svo að ég ætti sex foreldra í þeim skilningi að þau eiga börn á mínum aldri sem urðu mér eins og systkin.“
Að loknu grunnskólanámi í heimabyggð fór Snævar í Menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi þaðan 2005. Síðan hóf hann nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði í Háskólanum á Bifröst og lauk því árið 2012. Hann hóf guðfræðinám árið 2010 og útskrifaðist í júní 2020 með mag. theol.-gráðu í guðfræði frá Háskóla Íslands.
Sumarstörf vann Snævar hjá Olís á Siglufirði þegar hann var í menntaskóla og fram til ársins 2007. „Árið 2007 fluttist ég austur á firði og vann þar hjá Brammer sem sá um innkaup og lagerhald fyrir álver Alcoa á Reyðarfirði.
Ég fór upphaflega í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði því mig langaði út í pólitík en eftir námið hafði sá áhugi dvínað mikið, ég fann þó að ég vildi vinna fyrir og með fólki. Ég var óákveðinn um stund en þegar ég bjó á Austfjörðum fór ég á námskeið sem prestur hélt um börn og sorg, þar fékk ég köllun til starfsins og fór strax næsta haust í guðfræði.
Með guðfræðináminu vann ég í sunnudagaskóla Langholtskirkju og var þar nokkra vetur, ég hélt svo í Útfararstofu Kirkjugarðanna, fyrst í sumarstarfi en það þróaðist út í hlutastarf með námi og var það gríðarlega góður skóli. Loks vann ég nokkur ár í Garðasókn sem heldur utan um Vídalínskirkju í Garðabæ og Garðakirkju á Álftanesi, þar fékk ég reynslu af brúðkaupum og eldriborgarastarfi. Öll þessi störf hafa reynst mér afar vel í starfi mínu sem prestur.
Árið 2021 var ég valinn til að verða Dalaklerkur og það var líkt og ég væri kominn heim. Íbúarnir hér tóku einstaklega vel á móti mér og fjölskyldunni minni, við erum komin hingað til að vera. Með hverju ári sem líður hér finn ég hvað þetta er gott samfélag að búa í og ala upp börn.“
Snævar hefur áhuga á tónlist, kvikmyndum, bókum og fólki. „Tónlistin sem ég hlusta nær eingöngu á er þungarokk og kántrítónlist. Ég hlusta á þungarokk á flestum stigum og þykir afar gott að hlusta á slíka tónlist fyrir athafnir en eftir þær hlusta ég á kántrí. Ég sæki mikið í bækur sem innihalda spennu og gleði, finnst bækurnar um lögreglumanninn Longmire afar góðar. Þegar snýr að kvikmyndum er það misjafnt hvað ég sæki í hverju sinni en góðar hasarmyndir eiga alltaf upp á pallborðið hjá mér. Líka sannsögulegar myndir, þykir þær afar skemmtilegar og gúgla yfirleitt það sem raunverulega gerðist á meðan ég horfi á kvikmyndina.“
Fjölskylda
Eiginkona Snævars er Sólrún Ýr Guðbjartsdóttir, f. 6.1. 1985, kennari. Þau eru búsett í Búðardal. Foreldrar Sólrúnar eru Guðbjartur Ingvar Torfason flugvirki, f. 2.8. 1957, og Þórey Björg Gunnarsdóttir leikskólakennari, f. 28.8. 1960.
Börn Snævars og Sólrúnar eru Þórey Edda Sólrúnardóttir Marx, f. 9.12. 2006, Arnfríður María Snævarsdóttir, f. 13.1. 2013, Alba Ingibjörg Snævarsdóttir, f. 15.8. 2019, og Hinrik Elí Snævarsson, f. 8.6. 2022.
Systkini Snævars eru Bylgja Hafþórsdóttir, f. 24.10. 1964, búsett á Siglufirði; Hrönn Hafþórsdóttir, f. 24.10.1964, búsett á Siglufirði; Hjalti Hafþórsson, f. 21.6. 1966, búsettur í Svíþjóð; Hafþór Hafþórsson, f. 10.2. 1969, búsettur í Noregi; Eiður Hafþórsson, f. 25.12. 1971, búsettur á Akureyri, og Daði Hafþórsson f. 9.2. 1973, búsettur í Hafnarfirði.
Foreldrar Snævars eru hjónin Jón Andrjes Hinriksson, f. 19.5. 1958, útibússtjóri Olís á Siglufirði, og Jónína Brynja Gísladóttir, f. 18.9. 1947, húsfreyja. Þau eru búsett á Siglufirði.