Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Brýnt er að bæjarstjórn Fjallabyggðar og framkvæmdaaðilar endurskoði áform um byggingu verslunarkjarna í miðbænum á Siglufirði og hugi að því hvernig best sé að tryggja að heildstæð ásýnd og arfleifð bæjarins sem miðpunkts síldveiða og síldarvinnslu á Íslandi haldi sér. Fyrirhugaður verslunarkjarni ógni heildarmynd bæjarins.
Þetta kemur m.a. fram í umsögn Selvíkur ehf. um áformaðar breytingar á deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar sem frá hefur verið greint í Morgunblaðinu, en þær gera ráð fyrir að byggður verði verslunarkjarni sem hýsa á nýja verslun Samkaupa í bænum.
Forráðamaður Selvíkur er Róbert Guðfinnsson athafnamaður á Siglufirði, en hann hefur staðið fyrir umfangsmikilli uppbyggingu í ferðaþjónustu í bænum á umliðnum árum.
„Ef bygging verslunarkjarnans verður að veruleika samkvæmt núverandi hugmyndum mun það brjóta upp samræmda ásýnd miðbæjarins og raska þeirri tengingu sem smábátahöfnin skapar við bæjarlífið. Ný bygging í þessum stíl og á þessum stað myndi draga úr sögulegu og menningarlegu vægi svæðisins, sem hefur verið vandlega viðhaldið og þróað síðustu árin,“ segir í umsögninni sem birt er í skipulagsgátt.
Segir þar að með vandaðri skipulagningu sé hægt að samræma nýjan miðbæ á Siglufirði við þá sögulegu og menningarlegu sérstöðu sem geri bæinn að einstökum áfangastað.
Rifjað er upp að með þá sýn að leiðarljósi hafi árið 2012 verið gert samkomulag á milli Rauðku ehf. og Fjallabyggðar. En Rauðka, sem var í eigu sömu aðila og Selvík, stóð fyrir endurgerð gamalla fiskverkunarhúsa við smábátahöfnina þar sem nú eru vinsælir veitingastaðir. Þá var Sigló Hótel byggt í stíl sem samræmist umhverfinu, þ.m.t. Síldarminjasafninu og öðrum byggingum í bænum. Með þeirri uppbyggingu hafi Siglufjörður öðlast nýtt hlutverk sem ferðaþjónustubær.
Í téðu samkomulagi hafi aðilar verið sammála um sýn Rauðku á útlit miðbæjarins á Siglufirði og núverandi deiliskipulag unnið í samstarfi aðila. Það skipulag dragi fram styrkleika bæjarímyndar Siglufjarðar. Fram til ársins 2024 hafi Selvík staðið í þeirri trú að Fjallabyggð ætlaði að standa við sinn hluta samningsins.
Bent er á að sem framlag Rauðku til endurskipulagningar á miðbæ Siglufjarðar hafi félagið keypt eignir Egilssíldar, rifið húsið og afhent Fjallabyggð lóðina endurgjaldslaust. Áætlaður kostnaður Rauðku vegna þess hafi numið um 30 milljónum á núvirði.
Í umsögn sinni mælist Selvík til þess að horfið verði frá áformum um breytingu á deiliskipulagi á miðbæ Siglufjarðar og þar með fallið frá fyrirhugaðri byggingu Samkaupa. Þess er jafnframt óskað að hafist verði án tafar handa við framkvæmdir samkvæmt gildandi deiliskipulagi.