Jakob Ásmundsson ráðinn til DTE.
Jakob Ásmundsson ráðinn til DTE.
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið DTE hefur ráðið Jakob Ásmundsson sem nýjan framkvæmdastjóra. Jakob býr að víðtækri reynslu úr atvinnulífinu og í umbreytingarstjórnun. Hann mun móta og leiða stefnu DTE á næstu skrefum í vegferð fyrirtækisins að því…

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið DTE hefur ráðið Jakob Ásmundsson sem nýjan framkvæmdastjóra.

Jakob býr að víðtækri reynslu úr atvinnulífinu og í umbreytingarstjórnun. Hann mun móta og leiða stefnu DTE á næstu skrefum í vegferð fyrirtækisins að því markmiði að verða leiðandi samstarfsaðili álframleiðanda. Hann starfaði áður sem fjármálastjóri Travelshift.

DTE stefnir á nýja markaði og mun Jakob vera í lykilhlutverki í að leiða fyrirtækið í gegnum komandi vaxtarfasa. Jakob mun byggja á víðtækri reynslu sinni þegar kemur að fyrirtækjarekstri til að tryggja að DTE nái markmiðum um vöxt og markaðshlutdeild. Þekking hans á vöruþróun og tækni mun einnig vera mikilvægur þáttur í að tryggja að næsta kynslóð lausna DTE aðstoði álframleiðendur við að ná háleitum markmiðum sínum um kolefnishlutleysi og aukna endurvinnslu áls.

Jakob mun stýra daglegum rekstri og áframhaldandi vexti fyrirtækisins, en fráfarandi framkvæmdarstjóri og meðstofnandi DTE, Karl Ágúst Matthíasson, mun einbeita sér að viðskiptaþróun, þar sem hann mun sinna verkefnum tengdum fjármögnun, stefnumótandi samstarfi og stærri söluverkefnum. Þrátt fyrir að Karl stigi úr hlutverki framkvæmdastjóra verður þekking hans og tenglsanet innan iðnaðarins enn í lykilhlutverki í vaxtarfasa fyrirtækisins.
magdalena@mbl.is