Norður ♠ KDG863 ♥ 62 ♦ DG54 ♣ G Vestur ♠ 1092 ♥ D9874 ♦ K9 ♣ Á84 Austur ♠ 75 ♥ 105 ♦ Á10972 ♣ 10762 Suður ♠ Á4 ♥ ÁKG3 ♦ 63 ♣ KD953 Suður spilar 5♣

Norður

♠ KDG863

♥ 62

♦ DG54

♣ G

Vestur

♠ 1092

♥ D9874

♦ K9

♣ Á84

Austur

♠ 75

♥ 105

♦ Á10972

♣ 10762

Suður

♠ Á4

♥ ÁKG3

♦ 63

♣ KD953

Suður spilar 5♣.

Peter Weichsel er orðinn 81 árs en í fullu fjöri og hefur m.a. undanfarið spilað í öldungaliði Bandaríkjanna við Bob Hamman, sem er 86 ára. Weichsel viðurkennir í nýrri bók sinni að þeir félagar eigi erfiðara en áður með að muna nýjar sagnvenjur og birtir spilið að ofan sem kom fyrir í undanúrslitum HM árið 2023.

Hamman í suður opnaði á 1♣. Weichsel sagði 1♥, yfirfærsla í spaða og Hamman sagði 2♥, eðlilegt og sterkt. Nú flæktist málið. Samkvæmt kerfinu, sem nýlega hafði verið breytt, gat Weichsel yfirfært aftur í spaða með 3♥ en var óviss um að Hamman væri með á þeim nótum enda mótið langt komið. Hann lét sig þó hafa það, sagði 3♥ og Hamman lyfti í 4♥, hafði ljóslega gleymt samkomulaginu. Weichsel breytti í 4♠ en Hamman tók þá sögn sem ásaspurningu og svaraði með 5♣. Þá gafst Weichsel upp og passaði. 5♣ fóru síðan þrjá niður en við hitt borðið unnust 4♠.