Bragi Kristjónsson
Á jóladag 1959 hélt kunnur borgari í Reykjavík upp á fimmtugsafmæli sitt á fallegu heimili sínu að Smáragötu 11. Meðal boðsgesta var ég. Þá 21 árs. Helztu góðborgarar landsins voru í þessari veizlu, þar á meðal Ólafur Thors forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra, Jóhann Hafstein og eiginkonur þeirra. Í boðinu á heimili skipamiðlarans var einnig Sigurður Arnalds, ritstjóri tímaritsins Satt, og frú hans. Veitingar voru síldarréttir, hvítvín og bjór og snittur frá Þorvaldi Guðmundssyni í Síld og fisk.
Ég færði afmælisbarninu ljósrit af handritinu „Sneglu-Halli“ sem var handskrifað blað úr 4ða bekk B 1913-19, en meðal nemanda þar voru Jón Helgason, síðar prófessor í Kaupmannahöfn í rúmlega hálfa öld, Jónas Sveinsson læknir í Reykjavík, Lárus Jóhannesson hrl. í Reykjavík, og Magnús Magnússon, sem lengi hélt úti tímaritinu „Stormur“, ádeilublaði þeirra tíma. Einnig var þar Gunnar Benediktsson í Hveragerði. Þá voru einnig í boðinu kaffifélagar Gunnars á Hótel Borg, Ingimar Brynjólfsson heildsali, Sverrir Bernhöft heildsali, Magnús Kjaran heildsali og Hallgrímur Friðrik Hallgrímsson, þá forstjóri Shell á Íslandi. Í boðinu var einnig bókbindari Gunnars miðlara, en hann safnaði gömlum bókum af miklum ákafa, frk. Unnur Stefánsdóttir, líka var þarna Hallgrímur Thomsen lögmaður í Kaupmannahöfn.
Í eigu Gunnars var m.a. málverk eftir hinn heimsfræga málara Monet. En stuttu eftir afmælishaldið hvarf hún og hefur aldrei spurst til hennar síðan.
Ein af mörgum góðum ræðum í boðinu var tala Sverris Kristjánssonar sagnfræðings. Hún hljóðaði á þessa lund: „Kæri vinur Gunnar. Þegar byltingin verður á Íslandi verður þú skotinn fyrstur – en þú færð silfurkúlu.“ Líkaði gestum þessi ræða vel og var henni klappað lof í lófa.
Gunnar átti fjórar dætur og einn son. Tengdafaðir hans var guðfræðiprófessorinn Magnús Jónsson, bróðir rithöfundarins Þorsteins Jónssonar sem skrifaði undir dulnefninu Þórir Bergsson.
Höfundur var bókakaupmaður í Reykjavík i rúm 40 ár.