Mannskapurinn vestra var svo sannarlega ekki að láta sér leiðast við innsetningarveislu Donalds Trumps í höfuðborginni Washington sl. mánudag. Ekkert var til sparað og hafði forsetinn, sem nú var hafinn til valda á ný, og gestir hans glansað mjög, og þó karlarnir ekki eins myndarlega og kvenfólkið í móttökunni í Þinghúsinu miðju. Trump hafði tekið ákvörðun, að taka ekki áhættu fyrir almenning, þegar vondar veðurspár gáfu til kynna, að margur myndi eiga erfitt með að standa tímunum saman í kuldakastinu og margir gætu veikst.
Ýmsir þeir, sem teljast til ríkustu manna Bandaríkjanna, og í einhverjum tilvikum sjálfsagt ríkustu manna heimsins, höfðu nýlega snúið frá stuðningi sínum við demókrata og hallað sér að Trump og repúblikönum og eru sagðir hafa lagt til myndarlegar upphæðir úr sínum víðu vösum, til að spara almenningi útgjöld við hátíðarhöldin. Voru þeir greifar raunar allir mjög sjáanlegir í hringsalnum mikla, The Rotunda, sem er hátt í tveggja alda gamalt mannvirki, á milli húsa deildanna beggja, og voru þessir „örlátu“ menn og makar þeirra vel áberandi í heiðurssætum sínum. Þulir sögðu að þar væru rúmlega 700 gestir, en að auki sýndu sjónvarpsskermar myndir af öllum þessum atburðum víðar í þessum byggingum og annars staðar.
Aðeins einu sinni áður hafa útihátíðarhöldin vegna innsetningar forseta verið færð inn vegna kulda, en það gerðist í annarri innsetningarathöfn Ronalds Reagans.
Athöfnin á mánudag var mjög hátíðleg. Fyrst var það dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, sem lét varaforsetaefnið, James David Vance, samþykkja hefðbundinn eiðstaf og þá kom röðin að hinum nýkjörna forseta, sem var raunar að vinna slíkan eið í annað sinn (í fyrra skiptið 2016) og nú var það forseti Hæstaréttar Bandaríkjanna, John G. Roberts yngri, sem las forsetaefninu textann, sem studdist við stjórnarskrá Bandaríkjanna, og forsetaefnið hafði textann eftir Roberts hæstaréttarforseta, hefðinni samkvæmt.
Þegar það var afstaðið brustu út mikil fagnaðarlæti, þótt ekki muni allir í hátíðarsalnum hafa fagnað mikið. Og þá flutti hinn nýi forseti athyglisverða ræðu, sem var mjög í anda Donalds Trumps forseta, sem nú var orðinn 47. í röð forseta frá upphafi, en hann var áður 45. forseti landsins. Trump lét ekki nærveru fráfarandi forseta, Joes Bidens, né annarra viðstaddra fv. forseta trufla sig. Trump sýndi Biden ekki sérstaka tillitssemi og þó hafði hann skömmu áður farið með fráfarandi forseta í hinum fræga forsetabíl að Hvíta húsinu, þar sem þeir drukku te saman, samkvæmt ríkri hefð, og fóru svo aftur saman í „eðalvagni Bidens“ að þinghúsinu.
Þrátt fyrir öll þessi „huggulegheit“ hélt hinn ný-innsetti forseti ræðu sína og þá fékk Joe Biden svo sannarlega „sinn skammt“ og að „finna til tevatnsins“ á ný, en þess utan var ræða hans um margt mjög eftirtektarverð en vissulega nokkuð óvenjuleg.