Erfiðlega hefur gengið í viðræðum Verkalýðsfélags Akraness og Samtaka atvinnulífsins um endurnýjun stóriðjusamninganna á Grundartanga, sér í lagi kjarasamning Norðuráls. Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA segir að krafa verkalýðsfélagsins sé…

Erfiðlega hefur gengið í viðræðum Verkalýðsfélags Akraness og Samtaka atvinnulífsins um endurnýjun stóriðjusamninganna á Grundartanga, sér í lagi kjarasamning Norðuráls. Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA segir að krafa verkalýðsfélagsins sé einföld; að gengið verði frá kjarasamningum við stóriðjufyrirtækin í anda þeirrar launastefnu sem samið hefur verið um á almenna vinnumarkaðinum.

„Það vekur undrun mína að standa í þessum sporum því ég hélt að það yrði lítið mál að ganga frá kjarasamningum við þessi stóru og öflugu fyrirtæki, sérstaklega í ljósi þess að búið var að ganga frá kjarasamningum á hinum almenna vinnumarkaði,“ segir Vilhjálmur. Hann segist ekki vita hvar þetta endar en hann bíði eftir endanlegu svari, sérstaklega frá Norðuráli, „en ég á frekar von á að við náum að koma þessu upp á teinana hvað Elkem varðar“, segir hann.

Fyrirhugaður er fundur viðsemjenda í dag. „Ég hef ekki fengið svar frá Samtökum atvinnulífsins um hvort þau ætla að mæta til þessa fundar á grundvelli þeirrar launastefnu sem um hefur verið samið eða hvort þau halda að stóriðjufyrirtæki á Íslandi muni ekki lúta þeim launabreytingum sem um var samið. Við slíkt verður aldrei nokkurn tíma unað,“ segir Vilhjálmur.

Hann segist hafa verið samkvæmur sjálfum sér og haldið sig innan þeirrar launastefnu sem samið var um í fyrra en viðsemjendurnir hafi farið að blanda saman öðrum atriðum sem lúta að starfsaldurshækkunum og fleiru. „Þetta er einhver ný nálgun sem ég hef aldrei séð áður og er forviða á þessum vinnubrögðum en við skulum sjá til,“ segir hann.

„Ef það verður niðurstaðan að Samtök atvinnulífsins ásamt Norðuráli ætla ekki að fylgja þessari launastefnu, þá liggur alveg fyrir að hún á þá bara ekki við lengur. Þá eru menn farnir að tala um aðra kröfugerð því ekki erum við að berjast fyrir launastefnunni sem samið var um í mars ef fyrirtækin sjálf eru ekki tilbúin að fylgja henni. Þá erum við komin á annan stað.“ omfr@mbl.is