Gunnar Emil Pálsson fæddist í Reykjavík 14. ágúst 1934. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 6. janúar 2025.

Foreldrar hans voru Páll Magnússon, f. 30. september 1911, d. 22. janúar 1978, og Kristjánsína Sigríður Sæmundsdóttir, f. 18. nóvember 1911, d. 6. febrúar 1990.

Bræður Gunnars eru Sæmundur, f. 31. júlí 1936, Magnús, f. 31. júlí 1936, d. 22. maí 2015, og Hafsteinn, f. 24. apríl 1954.

Eiginkona Gunnars var Kristjana Alda Jóna Vilhjálmsdóttir, f. 27. desember 1931, d. 17. ágúst 2017. Foreldrar hennar voru Vilhjálmur Kristjánsson, f. 26. ágúst 1899, d. 21. júní 1985, og Hugborg Aðalheiður Þorsteinsdóttir, f. 19. október 1904, d. 10. mars 1997.

Gunnar Emil og Alda eignuðust fjögur börn saman. a) Kristján Hlíðar, f. 24. júní 1954. Börn hans eru Styrmir Bolli, f. 2. júlí 1973, Írena Lilja, f. 11. september 1982, og Vilhjálmur Garðar, fæddur 15. janúar 1989. b) Ómar Már, f. 23. nóvember 1958. Hann er giftur Gretu Björg Hafsteinsdóttur. Börn þeirra eru Birgir Páll, f. 24. nóvember 1989, og Stefán Ingi, f. 21. febrúar 1993. Fyrir átti Greta dótturina Ólínu Björgu Þorsteinsdóttur, f. 28. maí 1973. c) Hugborg Linda, f. 28. maí 1961. Hún er gift Hálfdáni Kristjánssyni, f. 6. febrúar 1956. Börn þeirra eru Gunnar Páll, f. 21. júlí 1981, Hilmar Már, f. 4. apríl 1984, Ingvi Hrafn, f. 11. apríl 1985, og Auður Ósk, f. 31. ágúst 1991. d) Vilhjálmur Örn, f. 14. nóvember 1963. Hann er giftur Sigurbjörgu G. Tómasdóttur, f. 1. desember 1962. Börn þeirra eru Ómar Örn, f. 13. október 1990, og Kristófer Jökull, f. 13. nóvember 1992. Fyrir átti Vilhjálmur Svanfríði Fannberg Lísudóttur, f. 24. nóvember 1989, og Sigurbjörg átti fyrir Kasper Tómas Magnússon, f. 14. maí 1981.

Útför Gunnars fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 22. janúar 2025, klukkan 13.

Stuttu fyrir jólin heimsótti ég Gunnar bróður í íbúð sína í Furugerðinu. Að vanda ræddum við ýmislegt, eins og pólitík, sagnfræði og áhugaverða þætti á erlendum sjónvarpsstöðvum. Ég sá að heilsu hans hafði hrakað mikið frá síðustu heimsókn en hugsunin var skýr og engan beyg að finna.

Þegar ég minnist Gunnars leitar hugurinn til bernskuáranna í húsi foreldra okkar í Hvammsgerði en Gunnar bjó þar einnig með fjölskyldu sinni um árabil. Tuttugu ára aldursmunur var á okkur bræðrum og það var gott fyrir mig að alast upp með frændsystkinum mínum. Gunnar var afar barngóður og minningarnar tengjast gleði og kátínu.

Gunnar fór ungur til sjós. Hann lærði síðar pípulagnir og var pípulagningameistari í fjölda ára. En alltaf togaði sjómennskan í hann, sem varð til þess að hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Það gerði hann af miklum dugnaði og að mestu utanskóla.

Gunnar var góður námsmaður og tungumál lágu sérstaklega vel fyrir honum. Það hefur án efa nýst honum vel í starfi stýrimanns á fraktskipum víða um lönd, enda var Gunnar áhugamaður um sögu og menningu.

Síðar fluttu Gunnar og Alda í Maríubakka í Breiðholti og bjuggu sér þar afskaplega hlýlegt heimili. Þar leið þeim vel og við hjónin eigum margar góðar minningar frá þeim tíma. Í íbúðinni við Maríubakka blómstraði Alda sem listamaður, einkum málari, en einnig í ýmsu öðru handverki. Einn skugga bar þó á en Gunnar greindist með slæmt krabbamein sem hann barðist við og tókst að yfirvinna. Þegar heilsu Öldu fór að hraka fluttu þau í Furugerði. Alda lést árið 2017. Blessuð sé minning hennar.

Með miklum söknuði kveð ég Gunnar bróður minn. Við fjölskyldan sendum öllum ástvinum hans samúðarkveðjur.

Hafsteinn.