Skot Rasmus Lauge reynir skot að marki Þjóðverja í Herning í gær.
Skot Rasmus Lauge reynir skot að marki Þjóðverja í Herning í gær. — AFP/Bo Amstrup
Mathias Gidsel fór á kostum fyrir heimsmeistara Danmerkur þegar liðið vann stórsigur gegn Þýskalandi, sem Alfreð Gíslason þjálfar, þegar liðin mættust í fyrstu umferð milliriðils eitt á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Herning í Danmörku í gær

Mathias Gidsel fór á kostum fyrir heimsmeistara Danmerkur þegar liðið vann stórsigur gegn Þýskalandi, sem Alfreð Gíslason þjálfar, þegar liðin mættust í fyrstu umferð milliriðils eitt á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Herning í Danmörku í gær.

Leiknum lauk með tíu marka sigri danska liðsins, 40:30, en Gidsel gerði sér lítið fyrir og skoraði 10 mörk í leiknum.

Jafnræði var með liðunum á fyrstu mínútum leiksins og var staðan 8:7, Danmörku í vil, eftir rúmlega tíu mínútna leik.

Þá hrökk danska liðið í gang og skoraði fjögur mörk í röð og komst fimm mörkum yfir. Danir leiddu með sex mörkum í hálfleik, 24:18, og Þjóðverjar voru aldrei líklegir til þess að snúa leiknum sér í vil í seinni hálfleik.

Simon Pytlick skoraði átta mörk fyrir Dani en Julian Köster og Timo Kastening voru markahæstir hjá Þjóðverjum með sex mörk hvor.

Dika Mem var markahæstur hjá Frakklandi þegar liðið vann öruggan sigur gegn Ungverjalandi í milliriðili tvö í Varazdín.

Leiknum lauk með sjö marka sigri Frakklands, 37:30, en Mem skoraði sex mörk fyrir Frakka og var markahæstur hjá franska liðinu.

Leikurinn var aldrei spennandi en Frakkar náðu snemma fimm marka forskoti, 9:4, og leiddu með átta mörkum í hálfleik, 23:15. Ungverjum tókst aldrei að ógna forskoti franska liðsins í síðari hálfleik.

Nedim Remili og Melvyn Richardson skoruðu fimm mörk hvor fyrir Frakkland en Máté Lékai var markahæstur hjá Ungverjum með fimm mörk.