Nagli Ýmir Örn Gíslason fagnar með tilþrifum með herbergisfélaga sínum Viggó Kristjánssyni í leiknum gegn Slóveníu á HM á mánudagskvöld.
Nagli Ýmir Örn Gíslason fagnar með tilþrifum með herbergisfélaga sínum Viggó Kristjánssyni í leiknum gegn Slóveníu á HM á mánudagskvöld. — Morgunblaðið/Eyþór
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ísland mætir Egyptalandi í fyrsta leik sínum í milliriðli HM karla í handbolta í Zagreb klukkan 19.30 í kvöld. Með sigri er íslenska liðið nánast öruggt með sæti í átta liða úrslitum og verður mikið undir en bæði lið unnu sinn riðil og fara með fjögur stig í milliriðilinn

Í Zagreb

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Ísland mætir Egyptalandi í fyrsta leik sínum í milliriðli HM karla í handbolta í Zagreb klukkan 19.30 í kvöld. Með sigri er íslenska liðið nánast öruggt með sæti í átta liða úrslitum og verður mikið undir en bæði lið unnu sinn riðil og fara með fjögur stig í milliriðilinn.

Íslenska liðið kom sér í góða stöðu með sigrinum á Slóveníu, 23:18, á mánudagskvöldið.

Leggjum meira á okkur

„Maður er kominn niður á jörðina enda stutt í næsta leik,“ sagði Ýmir Örn Gíslason, línu- og varnarmaður íslenska landsliðsins í handbolta, í samtali við Morgunblaðið.

„Undirbúningurinn er hafinn fyrir leikinn við Egyptaland. Maður getur ekki leyft sér að vera endalaust í skýjunum,“ sagði Ýmir.

Hann var í lykilhlutverki í glæsilegum varnarleik Íslands gegn Slóveníu. Þar fyrir aftan átti Viktor Gísli Hallgrímsson svo magnaðan leik í markinu.

„Við komum mjög vel undirbúnir í leikinn. Við erum líka góðir í vörninni þegar við smellum. Við erum tilbúnir að leggja meira á okkur og við áttum okkur á því að góð vörn og góð markvarsla vinnur leiki. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Það sást í leiknum við Slóveníu að þegar við spilum góða vörn, erum ákafir og tilbúnir að hjálpa þá hörfa þeir aðeins og koma ekki eins vel í sínar árásir.

Viktor var rosalegur

Þá fórum við að stela boltum og fáum fullt af auðveldum mörkum úr hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik. Þar liggur grunnurinn að þessu. Það er ekkert skemmtilegra en að finna mann koma á sig og hann byrjar að kvarta. Þá höldum við áfram og þetta verður enn skemmtilegra. Viktor er svo orðinn frábær og hann var rosalegur á móti Slóvenunum. Heilt yfir er hann góður markvörður. Hann er stór og mikill og virkilega góður í að loka,“ sagði hann.

Fjölmargir Íslendingar hafa lagt leið sína til Zagreb síðustu daga eftir rólega fyrstu leiki. Íslenska liðið verður væntanlega ansi vel stutt í milliriðlinum.

„Það voru fleiri Slóvenar í höllinni og voru með mikil læti. Það er samt alltaf jafn góður stuðningur frá okkar stuðningsmönnum og gaman að sjá þá í stúkunni. Það eru nokkrar vélar á leiðinni og þá verða Íslendingarnir fleiri og með meiri læti. Við erum spenntir fyrir því,“ sagði Ýmir.

Hörkugóðir Egyptar

Hann á von á afar erfiðum leik gegn sterku liði sem hefur endað ofarlega á heimsmeistaramótum undanfarin ár. Þá sýndu Egyptar styrk sinn þegar þeir sigruðu Króata í riðlakeppninni, 28:24.

„Egyptarnir eru hörkugóðir. Þeir hafa endað ofarlega á síðustu 5-6 heimsmeistaramótum og eru með marga frábæra leikmenn. Þeir eru þungir og það er skriðþungi í þeim. Þeir eru mjög erfiðir við að eiga, bæði í vörn og sókn. Þetta er mjög heilsteypt og hávaxið lið. Þeir eru að mínu mati eitt af fimm bestu liðunum á þessu móti. Við þurfum að vera vel tilbúnir í þetta verkefni og enn meira en gegn Slóvenum,“ sagði Ýmir.

Ógnir Egypta eru öðruvísi en ógnir Slóvena og er því öðruvísi áskorun fram undan hjá Ými og félögum í vörninni.

„Á móti Slóvenum var þetta mikið einn á móti einum. Egyptar eru með meiri skotógn fyrir utan. Þeir reyna svo að leggjast á okkur og þrýsta okkur niður eins mikið og þeir geta. Það er mikilvægt að taka vel á móti þeim,“ sagði Ýmir Örn.

Höf.: Jóhann Ingi Hafþórsson