Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson er í liði vikunnar í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hjá ESPN eftir að hann skoraði í 2:1-sigri NAC Breda á Twente um liðna helgi. Elías Már hefur skorað sex mörk í 18 deildarleikjum á tímabilinu, þar af fjögur í síðustu fjórum leikjum. Breda, sem er nýliði í hollensku úrvalsdeildinni, er í níunda sæti deildarinnar með 25 stig.
Atli Arnarson, einn af burðarásunum í knattspyrnuliði HK, hefur framlengt samning sinn við Kópavogsfélagið og leikur áfram með því á næsta tímabili. Atli, sem er uppalinn hjá Tindastóli, kom til HK frá ÍBV fyrir tímabilið 2019. Atli, sem er 31 árs gamall, á að baki 144 leiki í efstu deild, þar af 93 með HK þar sem hann hefur skorað 16 mörk.
Bjarni Þór Hauksson og Jón Erik Sigurðsson urðu í tveimur efstu sætunum á alþjóðlegu unglingamóti í svigi í Folgaria á Ítalíu á mánudaginn. Bjarni Þór hafnaði í fyrsta sæti á mótinu og Jón Erik í öðru sæti. Þar með hefur Jón Erik unnið til verðlauna á átta unglingamótum í röð á Ítalíu.
Knattspyrnumaðurinn Andri Fannar Stefánsson hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt KA sem gildir út þetta ár. Andri Fannar hefur leikið með KA frá árinu 2019 og varð bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili. Þar á undan hafði hann leikið með Val frá árinu 2010. Alls hefur Andri Fannar leikið 198 leiki í efstu deild og skorað tvö mörk.
Enska knattspyrnufélagið Manchester City hefur fest kaup á brasilíska varnarmanninum Vítor Reis frá Palmeiras. Reis, sem er aðeins 19 ára gamall, er keyptur á 29,6 milljónir punda. Hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við City.
Franski knattspyrnumaðurinn William Saliba verður fjarri góðu gamni þegar Arsenal tekur á móti Dinamo Zagreb í 7. umferð Meistaradeildar Evrópu í Lundúnum í kvöld. Frakkinn er að glíma við meiðsli aftan í læri og er óvíst hvenær hann snýr aftur á völlinn.