Kristrún Frostadóttir
Kristrún Frostadóttir
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingar, segist ánægð með ráðningu Þórðar Snæs Júlíussonar sem framkvæmdastjóra þingflokksins, en kveðst ekki hafa komið að henni. „Stjórn þingflokks fer með ráðningar á starfsfólki sínu, þetta er þeirra ákvörðun

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingar, segist ánægð með ráðningu Þórðar Snæs Júlíussonar sem framkvæmdastjóra þingflokksins, en kveðst ekki hafa komið að henni.

„Stjórn þingflokks fer með ráðningar á starfsfólki sínu, þetta er þeirra ákvörðun. En ég get sagt fyrir mína parta að Þórður Snær baðst afsökunar á sínum umdeildu skrifum, hann ákvað að þiggja ekki sæti á þingi, hann er ekki að koma inn sem kjörinn fulltrúi, hann er að koma þarna inn sem launaður starfsmaður …“

Á kostnað almennings.

„Jú, en það hefur aldrei verið kosið í embætti framkvæmdastjóra þingflokks, það hefur alltaf verið ráðið í embættið. Hann býr yfir gríðarlegri reynslu, hefur að mínu mati axlað sína ábyrgð og ég held að þetta sé góð ráðning.“

Greiddi þingflokkurinn atkvæði um ráðningu hans?

„Það er stjórn þingflokksins sem tekur ákvörðun um ráðningar.“

Þegar þingflokknum var kynnt sú ákvörðun, hreyfði einhver mótmælum?

„Nei, enginn hreyfði andmælum og við tökum honum vel inn í þingflokk Samfylkingar.“

Áttir þú frumkvæði að ráðningunni eða var um hana samið þegar hann ákvað að víkja sæti?

„Það var ekki samið um eitt eða neitt, enda virkar það ekki þannig hjá okkur. Það er hans ákvörðun að þiggja ekki þingsætið og stjórn þingflokks sem ákveður að ráða hann.“

En einhvers staðar fæðist sú hugmynd og varla er það gert í óþökk formanns?

„Sú hugmynd fæðist út frá því að velja hæfan einstakling til starfa og það er ekki óeðlilegt að horft sé til þess fólks sem hefur tengsl við flokkinn.

Þórður Snær er í grasrót Samfylkingarinnar, hann er skráður í Samfylkinguna og þátttakandi í Samfylkingunni þó að hann hafi ekki þegið sæti á Alþingi og axlað með því mikla ábyrgð. Hann er fullgildur meðlimur í Samfylkingunni og nýtur trausts í Samfylkingunni. Ég styð þessa ráðningu.“

Höf.: Andrés Magnússon