Ráðhúsið Borgarstjórn samþykkti áætlun um málefni heimilislausra.
Ráðhúsið Borgarstjórn samþykkti áætlun um málefni heimilislausra. — Morgunblaðið/Ómar
Endurskoðuð aðgerðaáætlun með stefnu í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir til loka ársins 2027 var samþykkt einróma á fundi borgarstjórnar í gær. Stefnt er að því að auka áherslu á tímabundið og varanlegt húsnæði í stað neyðarrýma

Dóra Ósk Halldórsdóttir

doraosk@mbl.is

Endurskoðuð aðgerðaáætlun með stefnu í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir til loka ársins 2027 var samþykkt einróma á fundi borgarstjórnar í gær. Stefnt er að því að auka áherslu á tímabundið og varanlegt húsnæði í stað neyðarrýma. Í nýrri áætlun er stefnt að aukinni þjónustu við konur og einstaklinga af erlendum uppruna.

106 ný húsnæðisúrræði

Þá er stefnt að því að 106 nýjar húsnæðiseiningar bætist við þær 187 sem eru til í dag við lok ársins 2027. Nýtt neyðarskýli verður tekið í notkun í stað Konukots. Þarfagreining fyrir sólarhringsþjónustu/íbúðakjarna og fyrir neyðarskýli fyrir heimilislausa karlmenn verður gerð og stefnt er að því að fjölga stöðugildum í vettvangs- og ráðgjafarteymi borgarinnar, svo hægt verði m.a. að sinna næturþjónustu.

Lögð er áhersla á að tímasetja og kostnaðarmeta áætlun um hvernig hægt sé að koma í veg fyrir heimilisleysi ungmenna og einnig hvernig tryggja megi viðeigandi búsetuúrræði fyrir heimilislausa með langvarandi stuðningsþarfir vegna fötlunar eða vímuefnavanda.

Aukin virkni og þátttaka ríkisins

Í aðgerðaáætluninni kemur fram að stefnt er að því að auka þátttöku ríkisins í málefnum heimilislausra. Bæði eru nefnd virkniúrræði fyrir einstaklinga með flókinn vanda, þar sem borgin yrði einn aðili að verkefninu, og einnig betra aðgengi að heilbrigðis- og velferðarþjónustu með stuðningi ríkisins.