Kæra Lögmaður Búseta gerir alvarlegar athugasemdir og segir að framkvæmdin brjóti í bága við lög og reglugerð.
Kæra Lögmaður Búseta gerir alvarlegar athugasemdir og segir að framkvæmdin brjóti í bága við lög og reglugerð. — Morgunblaðið/Karítas
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Málið ber þess merki að ekki hafi verið vandað til verka í ljósi þess hversu umfangsmikið mannvirkið er og hversu miklir hagsmunir eru undir. Ekki var gætt að mikilvægum reglum sem eiga að tryggja vandaða málsmeðferð og tryggja aðkomu…

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

„Málið ber þess merki að ekki hafi verið vandað til verka í ljósi þess hversu umfangsmikið mannvirkið er og hversu miklir hagsmunir eru undir. Ekki var gætt að mikilvægum reglum sem eiga að tryggja vandaða málsmeðferð og tryggja aðkomu borgaranna að slíkum ákvörðunum,“ segir Erlendur Gíslason lögmaður hjá LOGOS.

Búseti hefur lagt fram stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna byggingar vöruskemmunnar við Álfabakka 2 þar sem þess er krafist að framkvæmdir verði stöðvaðar og ákvörðun byggingarfulltrúa felld úr gildi.

Erlendur sem gætir hagsmuna Búseta í málinu segir að framkvæmdin brjóti í bága við lög og reglur sem um slíka framkvæmd gildi og hann geri alvarlegar athugasemdir við framkvæmd og afgreiðslu þeirra leyfa sem gefin voru út vegna byggingarinnar.

Mikilvægar reglur brotnar

Hann segir að niðurstaða byggingarfulltrúa um að byggingarleyfi samræmist byggingarreglugerð standist ekki skoðun. Afstöðumyndir fullnægi ekki skilyrðum sem gerðar séu í byggingarreglugerð um að sýna þurfi afstöðu til nærliggjandi bygginga. Þær séu óljósar, verulega villandi og sýni t.a.m. ekki húsið númer 7 við Árskóga, en 14 metrar eru á milli húsanna.

„Í byggingarleyfinu kemur fram að öll framkvæmd skuli unnin eftir samþykktum aðal- og séruppdráttum. Þetta virðist ekki uppfyllt því byggingarleyfið var gefið út ári áður en séruppdrættirnir voru lagðir fram, um það leyti sem húsið var risið,“ segir Erlendur

Erlendur segir að mannvirkið og fyrirhuguð notkun þess brjóti í bága við skipulag. Mannvirkið sé hannað fyrir starfsemi sem samræmist ekki aðal- og deiliskipulagi. Leggja hefði þurft mat á hvort framkvæmdin væri umhverfismatsskyld, eins og lög kveða á um ef gólfflötur byggingar fyrir matvælaiðnað er yfir 1.000 m2. Gólfflötur kjötvinnslunnar að Álfabakka er 3.200 m2. Slíkt mat virðist ekki hafa farið fram áður en byggingarleyfi var gefið út eða tekið jákvætt í fyrirspurn þess efnis frá framkvæmdaraðila.

Fengu óljós og villandi svör

Hann segir jafnframt að auglýsingar um breytingarnar sem birtar voru í júlí 2022 hafi ekki verið áberandi eins og kveðið er á um lögum.

„Auglýsingin í Fréttablaðinu getur ekki talist fullnægjandi því hún var villandi og ekki til þess fallin að vekja athygli. Hún birtist með öðrum tillögum að breyttu deiliskipulagi og hverfisskipulagi í Reykjavík undir millifyrirsögninni „Bryggjuhverfi dælustöð“.

Hann segir að íbúar sem gerðu athugasemdir hafi fengið villandi svör frá borginni.

„Í svari skipulagsfulltrúa til íbúa var lítið lagt upp úr áhrifum framkvæmdarinnar og fullyrt að byggingarmagnið myndi aðeins ná upp í eina og hálfa hæð. Þetta svar gaf mjög óljósa og villandi mynd af því ferli og ákvörðunum sem síðar voru teknar.“

Erlendur bætir við að ekki hafi verið gefnar fullnægjandi upplýsingar um hvers konar mannvirki yrði um að ræða þegar byggingarleyfi var gefið út árið 2023 og ekki óskað eftir nauðsynlegum upplýsingum af hálfu borgarinnar áður en leyfi var gefið út.

„Á lóðinni var gert ráð fyrir verslun og þjónustu og ljóst er að ef byggt hefði verið mannvirki með slíkri þjónustu í samræmi við aðal- og deiliskipulag hefði byggingarmagn ekki leyft slíkt umfang mannvirkis sem nú er risið.“

Í deiliskipulagi er skylt að meta áhrif af umferð.

„Ekki verður séð að slíkt mat hafi farið fram. Skipulagsáætlanir gera ekki ráð fyrir starfsemi sem hefur í för með sér þungaflutninga, svo sem vörugeymslur og matvælaiðnað, enda svæðið skilgreint sem miðsvæði en ekki athafnasvæði,“ segir Erlendur Gíslason lögmaður hjá LOGOS.

Úrskurðar að vænta
um mánaðamótin

Stjórnsýslukæra Búseta barst úrskurðarnefnd umhverfis- og skipulagmála
14. janúar síðastliðinn.

Uppbyggingaraðili og Reykjavíkurborg höfðu frest til dagsins í gær til að gefa umsögn til nefndarinnar.

Í umsögn Álfabakka 2a kemur m.a. fram að umfangsmikil samskipti hafi verið við sérfræðinga Reykjavíkurborgar.

Í umsögn Reykjavíkurborgar segir að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að mannvirki samræmist ekki lögum.

Óttast að svæfa eigi málið, fólk gleymi og gefist upp

Á að rífa græna gímaldið?

Á fundi borgarstjórnar í gær fór fram umræða um hvernig hægt væri að leysa mál vöruskemmunnar við Álfabakka 2.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir borgarfulltrúi telur að stöðva hefði átt framkvæmdina strax og bendir á að því meira sem verður byggt á lóðinni því dýrara verði að breyta.

„Ég óttast að svæfa eigi málið, láta tímann líða svo það fenni yfir áfallið. Treysta á að fólk hætti að hugsa um þetta, hætti að gera mál úr þessu og sætti sig bara við þetta og gefist upp.“

Hún segist óska eftir umræðu um lausnir og hvað standi til að gera til að leysa þessa erfiðu stöðu?

„Á að laga græna gímaldið með einhvers konar breytingu, rífa það að hluta til eða allt?“ spyr Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir borgarfulltrúi.